Sunnlendingar buðu best í breikkun á Kjalarnesi Kristján Már Unnarsson skrifar 16. september 2026 17:44 Rangæingurinn Dofri Eysteinsson, eigandi Suðurverks, og Árnesingurinn Jón Örn Ingileifsson, eigandi Fossvéla. Myndin var tekin fyrir sex mánuðum þegar Landsvirkjun skrifaði undir verksamning við þá um jarðvegsvinnu vegna Hvammsvirkjunar en þeir reyndust lægstbjóðendur. Sigurjón Ólason Verktakarnir Suðurverk og Fossvélar áttu lægsta boð í breikkun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi milli Grundarhverfis og Hvalfjarðarganga. Sameiginlegt tilboð þeirra hljóðar upp á nærri 4,7 milljarða króna. Það er hálfum milljarði króna undir kostnaðaráætlun, eða 90,4 prósent af áætluðum verkakakostnaði, sem er tæplega 5,2 milljarðar króna.
Alls bárust fjögur tilboð í verkið og munaði tiltölulega litlu á tilboðsfjárhæðum. Borgarverk átti næstlægsta boð, upp á liðlega 5,1 milljarð króna, eða 99 prósent af kostnaðaráætlun. Hin tvö tilboðin voru bæði lítillega yfir áætluðum verktakakostnaði. Ístak bauðst til að vinna verkið fyrir rétt liðlega 5,3 milljarða króna, sem er 2,6 prósentum yfir áætluðum kostnaði, en Íslenskir aðalverktakar áttu hæsta boð, upp á tæplega 5,4 milljarða króna, sem er 4 prósentum hærra en áætlun. Breikka á Vesturlandsveg milli Hvalfjarðarganga og Vallár á Kjalarnesi.vísir/vilhelm Verktakafyrirtækin Suðurverk og Fossvélar eiga bæði sunnlenskar rætur. Rangæingurinn Dofri Eysteinsson er eigandi Suðurverks og Árnesingurinn Jón Örn Ingileifsson eigandi Fossvéla. Þeir hafa áður boðið saman í verk. Þannig náðu þeir að verða lægstbjóðendur í jarðvegsvinnu vegna Hvammsvirkjunar, í verkefni bæði í fyrra og aftur í ár. Verði gengið að tilboði Sunnlendinganna hafa þeir, samkvæmt útboðslýsingu Vegagerðarinnar, þrjú ár til að klára breikkun þessa 5,6 kílómetra langa kafla. Verkinu á að vera að fullu lokið þann 30. september árið 2029. Vegarkaflinn nær frá Vallá og að Hvalfjarðarvegi. Þar verða tvö hringtorg og tvenn ný undirgöng, við Grundarhverfi og við Arnarhamar. Einnig á að framlengja núverandi undirgöng við Klébergsskóla og leggja hliðarvegi og stíga. Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar, Veitna, Ljósleiðarans og Mílu.
Vegagerð Samgöngumál Samgönguáætlun Umferðaröryggi Reykjavík Kjósarhreppur Akranes Mosfellsbær Hvalfjarðargöng Tengdar fréttir Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Vegagerðin hefur boðið út breikkun 5,6 kílómetra kafla Vesturlandsvegar um Kjalarnes milli Vallár og Hvalfjarðarvegar. Gert er ráð fyrir að verkinu verði lokið 30. september 2029, eftir þrjú ár. Þetta er sex ára seinkun frá fyrri áætlunum. 19. júlí 2026 07:37 Árnesingur og Rangæingur grafa fyrir Hvammsvirkjun Verksamningur um framhald framkvæmda við Hvammsvirkjun var undirritaður í dag milli Landsvirkjunar og tveggja sunnlenskra verktaka. Kærumál eru þó enn í gangi en Landsvirkjunarmenn vonast samt til að geta boðið út stærstu verkþættina í sumar. 26. mars 2026 21:21 Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Ráðamenn Vegagerðarinnar og Betri samgangna lesa stórfelldan niðurskurð til framkvæmda í vegagerð út úr nýbirtu fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar, niðurskurð upp á samtals 4,4 milljarða króna. Hjá Vegagerðinni er boðaður 2,4 milljarða króna niðurskurður. Hjá Betri samgöngum, fyrirtæki ríkisins og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, er boðaður tveggja milljarða króna niðurskurður, samkvæmt upplýsingum frá fulltrúum þeirra. 10. september 2026 15:05 Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Sjá meira
Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Vegagerðin hefur boðið út breikkun 5,6 kílómetra kafla Vesturlandsvegar um Kjalarnes milli Vallár og Hvalfjarðarvegar. Gert er ráð fyrir að verkinu verði lokið 30. september 2029, eftir þrjú ár. Þetta er sex ára seinkun frá fyrri áætlunum. 19. júlí 2026 07:37
Árnesingur og Rangæingur grafa fyrir Hvammsvirkjun Verksamningur um framhald framkvæmda við Hvammsvirkjun var undirritaður í dag milli Landsvirkjunar og tveggja sunnlenskra verktaka. Kærumál eru þó enn í gangi en Landsvirkjunarmenn vonast samt til að geta boðið út stærstu verkþættina í sumar. 26. mars 2026 21:21
Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Ráðamenn Vegagerðarinnar og Betri samgangna lesa stórfelldan niðurskurð til framkvæmda í vegagerð út úr nýbirtu fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar, niðurskurð upp á samtals 4,4 milljarða króna. Hjá Vegagerðinni er boðaður 2,4 milljarða króna niðurskurður. Hjá Betri samgöngum, fyrirtæki ríkisins og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, er boðaður tveggja milljarða króna niðurskurður, samkvæmt upplýsingum frá fulltrúum þeirra. 10. september 2026 15:05