Ný stjarna fæðist í Heiðmörk um helgina Boði Logason skrifar 16. september 2026 19:00 Ný stjarna mun fæðast í Heiðmörk um helgina. Keppnin verður í beinni útsendingu á Vísi. Mynd/Viktor Freyr Það stefnir í óvenju spennandi Bakgarðshlaup í Heiðmörk um helgina. Uppselt er í hlaupið, yfir 200 keppendur eru skráðir til leiks og enginn þeirra sem hefur áður unnið keppnina verður á meðal keppenda. Það er því ljóst að nýr sigurvegari verður krýndur.
Keppnin verður í beinni útsendingu á Vísi og sjónvarpsstöðinni Vísi, sem má nálgast í öllum myndlyklum. Keppnin hefst klukkan 9:00 á laugardagsmorgun. Garpur I. Elísabetarson og Tinna Miljevic, sem munu lýsa keppninni, fengu Egil Trausta Ómarsson í spjall í hlaðvarpi Vísis þar sem þau ræddu meðal annars keppnina um helgina. Horfa má á þáttinn hér fyrir neðan. Bakgarðshlaupið fer þannig fram að keppendur hlaupa 6,7 kílómetra hring á hverjum klukkutíma. Þeir sem klára hringinn innan klukkustundar fá að halda áfram og er hlaupið endurtekið þar til aðeins einn keppandi stendur eftir. Bakgarðshlaupið er haldið tvisvar á ári, í Heiðmörk og í Öskjuhlíð. Keppnin hefur notið gríðarlegra vinsælda á Vísi síðustu ár. Ólíkt mörgum fyrri hlaupum er erfitt að benda á augljósan sigurvegara fyrir fram. Margir af reynslumestu bakgarðshlaupurum landsins hafa gefið það út að þeir ætli ekki að hlaupa til sigurs enda stór keppni í næsta mánuði. „Það er enginn sem hefur unnið Bakgarðinn áður sem er að fara að hlaupa til sigurs,“ segir Egill Trausti meðal annars í þættinum og bendir á að það geti gefið öðrum keppendum aukið sjálfstraust. Um tuttugu keppendur hafa þegar gefið það út að þeir ætli sér að hlaupa í sólarhring eða lengur. Ef keppendur hlaupa í tuttugu og fjóra klukkutíma ná þeir rúmlega 160 kílómetrum. Garpur, Tinna og Egill eru sammála um að óvissan um helgina gæti gert keppnina sérstaklega skemmtilega. Hlusta má á þáttinn líka í öllum helstu hlaðvarpsveitum. Ástæðan fyrir því er að í fyrri hlaupum hefur oft verið hægt að benda á nokkra reynslumikla hlaupara sem líklega myndu berjast um sigurinn. Nú sé staðan önnur. „Ég held að það geti allt gerst,“ segir Egill. Þótt margir af sterkustu bakgarðshlaupurum landsins ætli sér ekki endilega að berjast um sigur um helgina verður stór hluti íslenska landsliðsins á svæðinu. Framundan er heimsmeistarakeppni bakgarðshlaupa í október og er gert ráð fyrir að flestir landsliðsmennirnir mæti í Heiðmörk og nýti helgina sem æfingu fyrir það verkefni. Sú keppni verður einnig í beinni útsendingu á Vísi. Bakgarðshlaupið um helgina hefst, eins og áður segir, á laugardagsmorgun klukkan 9 og verður í þráðbeinni útsendingu á Vísi og sjónvarpsstöðinni Vísi allan sólarhringinn, eða þar til síðasti keppandi hefur lokið leik.
Bakgarðshlaup Hlaup Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Leik lokið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira