Konur fjárfestum! Iða Brá Benediktsdóttir skrifar 16. september 2026 13:01 Í rúm tvö ár höfum við hjá Arion unnið skipulega að stóru samfélagslegu verkefni sem nefnist Konur fjárfestum. Markmiðið hefur verið skýrt: Að fjölga þeim konum sem taka þátt í fjárfestingum, efla þekkingu kvenna á fjármálum með áhugaverðri fræðslu og styðja konur í því að ná fjárhagslegu sjálfstæði. Mikill munur á auðsöfnun karla og kvenna Hugmyndin að verkefninu fæddist fyrir um þremur árum þegar við tókum að rýna í gögnin okkar um skiptingu kynjanna á fjármálamarkaði. Í ljós kom mikill munur á auðssöfnun karla og kvenna. Það kom okkur vissulega ekki á óvart – ekki síst í ljósi viðvarandi launamunar kynjanna – og staðan hér á landi var sambærileg því sem við þekkjum frá nágrannalöndum okkar. Við Íslendingar stöndum framarlega í jafnréttismálum en þegar kemur að fjármálum kynjanna erum við á sama stað og samanburðarþjóðir. Og við hugsuðum einfaldlega: Fyrst við erum leiðandi afl þegar kemur að jafnréttismálum hljótum við einnig að geta orðið fyrirmynd þegar kemur að fjárhagslegu jafnræði kynjanna. Fjárhagslegt sjálfstæði kvenna mikilvægt Konur þurfa, ekki síður en karlar, að fjárfesta og auka við eignir sínar til að öðlast fjárhagslegt sjálfstæði. Slíkt eykur frelsi einstaklinga til að taka stórar ákvarðanir um líf sitt og starfsferil og móta framtíðina. Þegar fleiri hafa tækifæri til að byggja upp eignir og taka þátt í fjárfestingum skilar það sér í fjölbreyttara, öflugra og jafnara samfélagi. En fjárfestingar snúast ekki eingöngu um ávöxtun, fjárhagsleg markmið og sjálfstæði. Þær fela enn fremur í sér þátttöku í atvinnulífi, nýsköpun og þeim fyrirtækjum sem móta samfélagið og efnahagslífið til framtíðar. Þegar fleiri taka þátt verða sjónarmiðin fjölbreyttari og samfélagið sterkara. Rúmlega 10.000 konur hafa sótt fræðslufundi átaksins Þess vegna er sérstaklega ánægjulegt að átakið Konur fjárfestum, sem var alltaf hugsað sem langtímaátak, hefur gengið vel þessi fyrstu tvö ár og er að skila árangri. Alls hafa rúmlega 10.000 konur um land allt sótt fræðsluviðburði Arion um fjárfestingar, rekstur fyrirtækja og fjármál. Húsfyllir hefur verið á nánast hverjum einasta viðburði og viðtökurnar farið fram úr björtustu vonum okkar. Helmingsfjölgun kvenna sem fjárfesta í sjóðum okkar Við sjáum að þessi aukna fræðsla og umræða hefur skilað sér í breyttri fjármálahegðun meðal kvenna. Fleiri konur eru nú með reglulegan sparnað, fjárfesta og taka virkan þátt í umræðu um fjármál og eignamyndun. Gagnasafn okkar í Arion sýnir að þeim konum sem fjárfesta í sjóðum Stefnis fjölgaði um 56% á fyrstu tveimur árum átaksins. Þeim konum sem nýta sér reglulegan sparnað í sjóðum félagsins fjölgaði um 67% og heildareignir kvenna í sjóðum hafa aukist um 27%. Af þessu sést að sífellt fleiri konur eru að taka fyrstu skref sín í fjárfestingum og byggja með markvissum hætti upp eignasöfn. Enn er mikið verk að vinna Verkefninu er þó hvergi nærri lokið. Við bentum á það í upphafi átaksins að konur eiga einungis um 30-40% fjármagns á móti 60-70% eign karla – hlutfallið er breytilegt eftir því hvort horft er til eignar í viðbótarlífeyrissparnaði, verðbréfum eða sjóðum. Þetta sýndu gögn bankans og dótturfélaga sem og kauphallarinnar. Við bentum jafnframt á að ójöfn eignamyndum virðist hefjast strax í frumbernsku; sömu kynjuðu skiptingu mátti sjá hjá börnum undir tveggja ára aldri. Þegar einungis var horft til barna undir tveggja ára aldri og þeirrar verðbréfaeignar og innlána sem þau eru skráð fyrir hjá bankanum voru stúlkur skráðar fyrir um 40% þeirrar upphæðar en drengir um 60%. Þrátt fyrir ákveðna vitundarvakningu í samfélaginu og auknar fjárfestingar kvenna í sjóðum Stefnis hafa framangreindar tölur varðandi skiptingu fjármagns ekki breyst í grundvallaratriðum. Gildir það jafnt um fullorðna sem börn. Enn er því mikið verk að vinna og Konur fjárfestum átakinu er hvergi nærri lokið. Við hjá Arion ætlum að beita okkur áfram fyrir auknu fjármálalæsi, vera með skemmtilega og áhugaverða fræðslu og fjölga þeim tækifærum sem konur hafa til að kynna sér fjárfestingar. Hvetjum dætur og syni á sama hátt til að spara Það er jafnframt tímabært að hvert og eitt okkar sé meðvitað um hvaða skilaboð við sendum börnum okkar varðandi fjármál og eignamyndun og að þau fái frá unga aldri sömu hvatningu til að taka upplýstar ákvarðanir um eigin fjármál. Hvetjum dætur og syni á sama hátt til að spara, fjárfesta og byggja upp fjárhagslegt öryggi sitt. Fyrstu tvö ár verkefnisins Konur fjárfestum sýna að breytingar eru mögulegar. Þau sýna að áhuginn er til staðar og að markviss fræðsla getur haft raunveruleg áhrif. Við eigum langt í land en við erum lögð af stað. Höfundur er aðstoðarbankastjóri og framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion banka. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arion banki Mest lesið Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun