Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Samúel Karl Ólason skrifar 15. september 2026 19:30 Vladimír Pútín og Nikolai Patrushev. EPA/Alexei Danichev, Sputnik Ef Pólverjar færu í átök við Rússa, yrði Pólland ekki til tveimur til þremur dögum seinna. Rússar eru, samkvæmt ráðgjafa Vladimírs Pútíns, „engan veginn“ að beita fullum mætti sínum gegn Úkraínu.
Þetta segir Nikolai Patrushev, einn helsti aðstoðarmaður Vladimírs Pútín Rússlandsforseta í utanríkismálum. Hann var að bregðast við ummælum Radosławs Sikorski, utanríkisráðherra Póllands, á öryggisráðstefnu í Úkraínu fyrr í vikunni. Ummælum sem Patrushev sagði „barnaleg“. Ráðamenn í Rússlandi halda því af og til fram að þeir beiti einungis hluta herafla þeirra gegn Úkraínumönnum. Sex vikur að ganga frá olíuframleiðslu Rússa Á ráðstefnunni sagði Sikorski að af Pólverjar og bandamenn þeirra í Atlantshafsbandalaginu myndu lenda í alvöru átökum við Rússland, myndi NATO fljótt vinna sigur og það jafnvel án aðkomu Bandaríkjanna. Vísaði hann sérstaklega til þess að yfirburðir NATO í háloftunum væru gífurlega miklir. „Ef Rússar réðust á okkur og við tækjum af okkur hanskana, held ég að við myndum sigra fljótt,“ sagði Sikorski. Það myndi gerast jafnvel án aðkomu Bandaríkjanna. Þá nefndi hann langdræg vopn og sagði NATO eiga mun meira af þeim en Rússar. „Ef Úkraínumenn hafa skemmt helming rússneskra olíuvinnslna á sex mánuðum, gætum við gert það á sex vikum og gert út af við hinn helminginn.“ Sikorsky says Poland can take out the half of Russia's refineries that Ukraine hasn't yet destroyed in only 6 weeks. pic.twitter.com/Xs7z25OPNy— Jay in Kyiv (@JayinKyiv) September 13, 2026 Á áðurnefndri öryggisráðstefnu sat Sikorski sérstakan umræðufund þar sem stríð Rússa gegn Úkraínu og öryggi Evrópu voru til umræðu. Utanríkisráðherrann sagðist þeirrar skoðunar að enn sem komið væri hefði Pútín ekki áhuga á friði. Hann sagði að Pútín hefði gert mikil mistök með innrásinni í Úkraínu og að Rússar væru í hættu á því að verða eins konar leppir Kínverja. Kínverjar væru að græða fúlgur fjár á sölu til Rússlands og taka yfir alla markaði þar. Allan fundinn sem Sikorski sat má sjá í heild sinni hér. María Sakaróva, talskona utanríkisráðuneytis Rússlands, hefur einnig tjáð sig um ummæli utanríkisráðherrans pólska og segir hann þjást af „Rússahatri“. Pólverjar hafa á undanförnum árum gengist undir töluverða hernaðaruppbyggingu og hafa keypt mikið magn vopna og hergagna eins og herþotur og þyrlur frá Bandaríkjunum, stórskotaliðsvopn frá Suður-Kóreu og kafbáta frá Svíþjóð, svo einhverjir séu nefndir. Í fyrra tilkynntu ráðamenn í Póllandi að bjóða ætti þeim sem vilja upp á herþjálfun og er vonast til að hundruð þúsunda nýti sér það. Gervihnattamyndir hafa sýnt fram á töluverða hernaðaruppbyggingu í vestanverðu Rússlandi þar sem innviðir fyrir hermenn hafa risið og nýjar herstöðvar. Embættismenn í Evrópu hafa á undanförnum árum talað um að þegar stríðinu í Úkraínu ljúki gætu Rússar seinna meir ráðist á önnur ríki í Evrópu, eftir uppbyggingu.
Rússland Pólland Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Fleiri fréttir Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Sjá meira