Skipuleggjandi smygls handtekinn á Spáni og ákærður hér Árni Sæberg skrifar 15. september 2026 16:47 Einn hinna handteknu ásamt fulltrúa spænsku og íslensku lögreglunnar sem fóru utan í tengslum við rannsóknina. Vísi er ekki kunnugt um hvort hann sé sá sem fjallað er um í fréttinni. Europol Karlmaður frá Dóminíska lýðveldinu var ákærður í sumar fyrir að hafa skipulagt tvo smyglleiðangra frá Spáni til Íslands, annars vegar í gegnum Þýskaland og hins vegar í gegnum Sviss. Burðardýr í málunum hafa þegar hlotið þriggja ára og 21 mánaða dóma fyrir smyglið. Maðurinn var einn 24 handtekinna í umfangsmikilli aðgerð fjölþjóðlegs lögregluliðs.
Greint var frá því þann 10. febrúar síðastliðinn að alþjóðleg glæpasamtök sem stóðu að flutningi kókaíns frá Suður-Ameríku til Íslands hefðu verið leyst upp. Samtökin hefðu notað burðardýr til að flytja efnin. Lögregla í Litháen, Spáni og Íslandi hefði unnið með Evrópulögreglunni við rannsókn málsins óslitið í eitt ár og ráðist í handtökur og húsleit á fjölda staða þann 4. febrúar í samræmdum aðgerðum. Alls hefðu 24 verið handteknir, þar af 11 á Íslandi og íslenskir ríkisborgarar væru þar á meðal. Talið væri að brotahópurinn hefði hagnast um fjórar milljónir evra með stórfelldu smygli eða um sex hundruð milljónir króna. Að neðan má sjá myndskeið frá Evrópulögreglunni þar sem menn eru handteknir, færðir í járn og hald lagt á mikið magn kókaíns. Skipti um nafn Landsréttur hefur nú birt gæsluvarðhaldsúrskurð yfir einum þeirra sem handteknir voru á Spáni í tengslum við málið. Úrskurðurinn var kveðinn upp þann 30. júlí síðastliðinn og gilti til 24. ágúst. Í honum segir að hinn handtekni hefði breytt nafni sínu á meðan málið var til rannsóknar. Ákæra hefði verið gefin út á hendur honum þann 27. júlí, fyrir að hafa í tvígang staðið að skipulagningu og framkvæmd innflutnings fíkniefna hingað til lands frá Spáni. Alls rúm fimm kíló af kókaíni Í ákæru á hendur manninum, sem Vísir hefur undir höndum, segir að hann heiti Eramis Ramon Goris German en sé einnig þekktur undir nafninu Dicson Goris German. Hann sé ríkisborgari Dóminíska lýðveldisins, með dvalarstað í fangelsinu Litla-Hrauni. Hann sé í fyrsta lagi ákærður fyrir stórfellt fikniefnalagabrot, með því að hafa staðið að skipulagningu og framkvæmd innflutnings á 3,4 kílóum af kókaíni, með styrkleika 66 til 82 prósent, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Eduardo Aguilera Del Valle og Maria Estrella Jimenez Barrull hafi flutt efnin hingað til lands 16. ágúst 2025 sem farþegar með flugi frá Berlín í Þýskalandi til Keflavíkurflugvallar, falin í ferðatöskum. Líkt og Vísir greindi frá á sínum tíma voru þau Eduardo og Maria dæmd til þriggja ára fangelsisvistar í október í fyrra fyrir að smygla efnunum. Í ákærunni segir að Goris German hafi afhent þeim Eduardo og Maria töskurnar með fíkniefnunum á Spáni, skipulagt ferð þeirra hingað til lands og gefið þeim fyrirmæli varðandi flutninginn. Burðardýr fór frá Spáni til Sviss og þaðan til Íslands Þá segir í ákærunni að hann sé ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa staðið að skipulagningu og framkvæmd innflutnings á tveimur kílóum af kókaíni, með styrkleika 74 til 75 prósent, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni sem kona flutti hingað til lands 4. september 2025 sem farþegi með flugi frá Zurich í Sviss til Keflavíkurflugvallar, falin í farangurstösku. Hann hafi einnig afhent konunni töskuna með fíkniefnunum á Spáni, skipulagt ferð hennar hingað til lands og gefið henni fyrirmæli varðandi flutninginn.
Smygl Fíkniefnabrot Lögreglumál Dómsmál Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira