„Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 13. september 2026 22:07 Bragi Valdimar Skúlason er ekki sáttur við límmiða sem afhentir voru grunnskólabörnum frá lögreglunni. Tónlistarmaðurinn og íslenskufræðingurinn Bragi Valdimar Skúlason gagnrýnir metnaðarleysi við hönnun límmiða frá lögreglunni sem dreift hafi verið til grunnskólabarna. Fyrir löngu sé búið að „færa metnaðarstikuna undir slormörk þegar kemur að hönnun og prófarkalestri.“
Bragi segir smekkleysið hafa sigrað og að metnaðarleysi sé komið til að vera. „En ég á bara svo erfitt með að trúa því að við ætlum að sætta okkur við það,“ segir Bragi í Facebook-færslu og með fylgir mynd af límmiðanum umrædda. Færslan hefur vakið mikla athygli og er með rúmlega þúsund læk þegar þessi frétt er skrifuð. „Þetta fínerí fá grunnskólabörn afhent frá lögreglunni þessa dagana. Nei, ekki „lógreglunni“ eins og reyndar stendur þarna, heldur lögreglunni. Þið vitið, þessari sem á að gæta að lögunum og reglunum,“ skrifar Bragi. Á vestum lögreglumannanna á límmiðanum stendur „lógregla“ en ekki lögregla. Facebook/Bragi Valdimar Skúlason Fyrir löngu hafi metnaður þegar kemur að hönnun og prófarkalestri glatast. Einnig sé samfélagið búið að sætta sig við það að stórfyrirtæki hafi „skrapað upp alla mögulega teikni-, tón- og myndstíla sem hæfileikafólk hefur þróað og fullkomnað“ til þess að hægt sé að útbúa ýmislegt án viðkomu teiknara, hönnuða og yfirlesara. Gervigreindarefni sé sérstaklega haldið að börnum Listamaðurinn Halldór Eldjárn skrifar undir færsluna að hann hafi áhyggjur af því hversu miklu gervigreindarefni sé beint sérstaklega að börnum. Listamaðurinn Halldór Eldjárn er tölvunarfræðingur að mennt. Sigga Ella „Ég hef miklar áhyggjur af því hversu miklu illa AI-teiknuðu rusli er haldið sérstaklega að börnum. Þá mótast fagurfræði þeirra á lélegum illa unnum myndum og ákveðið menningar- og myndlæsi tapast. Börn þurfa vandaðar myndir og hágæða efni til að lesa, í mismunandi stílum og á fjölbreyttu sniði,“ skrifar Halldór. Sjá einnig: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Í síðasta mánuði vakti ný auglýsing Mjólkursamsölunnar mikil viðbrögð á samfélagsmiðlum þar sem útlit var fyrir að gervigreind hefði verið nýtt til verksins. Auglýsingarnar voru í kjölfarið teknar úr birtingu. Þá sagði Selma Rut Þorsteinsdóttir formaður Sambands íslenskra auglýsingastofa auglýsendur hugsi yfir innreið gervigreindar. „Ég held að við sem samfélag séum ekki alveg búin að ákveða hvað okkur finnst um hversu langt gervigreindin má fara í list og hönnun og sköpun og við erum kannski bara að átta okkur á því núna,“ sagði Selma í samtali við fréttastofu í ágúst.
Gervigreind Börn og uppeldi Lögreglan Íslensk tunga Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira