Handbolti

Sex­tán ís­lensk mörk í Meistara­deildinni

Valur Páll Eiríksson skrifar
Orri Freyr og félagar fögnuðu sigri.
Orri Freyr og félagar fögnuðu sigri. Getty/Gualter Fatia

Keppni hófst í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld þar sem nokkrir Íslendingar voru í eldlínunni.

Melsungen vann sterkan 33-31 sigur á Vardar frá Norður-Makedóníu. Þeir þýsku voru með yfirhöndina lengst af og sigurinn ekki í mikilli hættu á lokakaflanum þrátt fyrir tveggja marka muninn.

Markaskorið var einkar vel dreift í liði Melsungen þar sem línumaðurinn Johannes Golla var markahæstur með fimm mörk en Reynir Þór Stefánsson skoraði fjögur mörk úr sex skotum úr hægri skyttunni.

Í D-riðli vann Sporting öruggan tíu marka sigur, 43-33, á GOG frá Danmörku í Lissabon. Martim Costa var markahæstur á vellinum með ellefu mörk fyrir heimamenn en Færeyingurinn Óli Mittún skoraði átta fyrir GOG.

Orri Freyr Þorkelsson skoraði fjögur mörk úr fimm skotum úr vinstra horninu fyrir Sporting.

Fyrr í dag var Íslendingalið Kristianstad í eldlínunni í D-riðlinum er það heimsótti ungverska stórveldið Pick Szeged. Þeir ungversku voru of stór biti fyrir sænska liðið og unnu öruggan ellefu marka sigur, 42-31.

Einar Bragi Aðalsteinsson var markahæstur hjá Kristianstad með fjögur mörk og lagði einnig upp sex. Andri Erlingsson og Baldur Fritz Bjarnason skoruðu tvö mörk hvor.

Í A-riðli vann Fucshe Berlín 44-33 sigur á Partizan í Belgrað og í E-riðli vann Montpellier 27-23 útisigur á Dínamó í Búkarest.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×