Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 10. september 2026 07:30 Trump hélt ræðu á flokksþinginu í gærkvöldi. EPA Donald Trump Bandaríkjaforseti sagðist ætla að gefa öllum fullorðnum Bandaríkjamönnum fimm þúsund dollara ef repúblikanar bera sigur úr býtum í báðum deildum þingsins. Kosningarnar fara fram í nóvember.
Trump tilkynnti þetta í ræðu á fyrsta flokksþingi Repúblikanaflokksins sem haldið var í gær. Hann veitti engar nánari upplýsingar um hvaðan peningarnir kæmu heldur einungis að þeir sem fengju þessar þúsundir þyrftu að verja honum í Bandaríkjunum. „Við viljum ekki að þið farið til Kanada til að eyða peningunum,“ sagði Trump á þinginu samkvæmt BBC. „Við viljum ekki að þið farið til Kína, til Þýskalands. Þið verðið að eyða peningunum í Bandaríkjunum.“ Fimm þúsund dollarar samsvara rétt rúmum sex hundruð þúsund krónum en þessi áætlun myndi kosta meira en billjón dollara, rúmar 120 þúsund milljarða króna. Fullorðnir Bandaríkjamenn eru tæplega 270 milljónir talsins. Demókratar voru fljótir að gagnrýna áætlunina og sögðu hana „innantómt loforð“. Þá hafa vaknað upp spurningar um hvort hægt sé að framkvæma slíkt, sér í lagi þar sem verðlag hækkar óðum í Bandaríkjunum. Stríðsátök þeirra í Íran hafa haft áhrif þar líkt og hérlendis þar sem verð á olíu og fljótandi jarðgasi sveiflast. Trump sagði einnig í gær að stríðinu yrði ekki lokið fyrr en þingkosningunum væri lokið og olíuverð myndi ekki hækka fyrr en þá. Rökstuðningur forsetans var að skammtím efnahagsleg áhrif væru þess virði til þess að koma í veg fyrir að Íranir þrói kjarnorkuvopn. Alríkislög Bandaríkjanna banna þá allar greiðslur sem ætlað er að hafa áhrif á kosningahegðun.
Donald Trump Bandaríkin Þingkosningar í Bandaríkjunum Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira