Golf

Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag

Aron Guðmundsson skrifar
Frábær spilamennska Ragnars Más Garðarssonar í dag sem skilaði besta skori allra á öðrum hring úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina.
Frábær spilamennska Ragnars Más Garðarssonar í dag sem skilaði besta skori allra á öðrum hring úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina. Golf.is / Seth

Ragnar Már Garðarsson, kylfingur úr GKG, átti besta hring dagsins á úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina, DP World Tour, í Þýskalandi. Nokkrir íslenskir kylfingar eru í góðum málum á mótinu.

Um úrtökumóti á fyrsta stigi er að ræða og fer það fram í Þýskalandi. Mótið er eitt af tíu mótum á fyrsta stigi úrtökumótanna en kylfingar þurfa að komast í gegnum þrjú stig til þess að fá þátttökurétt á DP World Tour og óhætt að segja að þræða þurfi nálaraugað til að komast alla leið.

Átta kylfingar frá Íslandi taka þátt á mótinu og átti Ragnar besta hring dagsins af öllum kylfingum í dag er hann fór þennan annan hring mótsins á 67 höggum, þremur höggum undir pari. 

Ragnar fékk draumabyrjun með erni á fyrstu holu. Alls fékk hann svo fimm fugla og tvo skolla. 

Eftir fyrstu tvo hringi mótsins er hann jafn í ellefta sæti á alls fjórum höggum undir pari og er sömu sögu að segja um ríkjandi Íslandsmeistarann Dagbjart Sigurbrandsson og Aron Júlíusson. 

Sigurður Arnar Garðarson er svo skammt undan á þremur höggum undir pari og jafn í 16. sæti mótsins en aðrir Íslenskir kylfingar töluvert neðar á listanum.

Leiknir eru fjórir hringir á mótinu. Alls spila 82 kylfingar á mótinu í Þýskalandi og má ætla að rúmlega fimmtungur þeirra fari áfram á annað stig, þar sem svo samtals um 320 kylfingar spila á fjórum mótum um mánaðamótin október-nóvember á Spáni. Á lokamótinu mæta svo 156 kylfingar til leiks og leika sex hringi. Aðeins þeir 15 efstu, og jafnir 15. sæti, á lokaúrtökumótinu komast inn á DP World Tour auk þess að fá fullan keppnisrétt á HotelPlanner Tour, næststerkustu mótaröð Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×