Orðaval mótar líðan okkar og upplifun Ingrid Kuhlman skrifar 10. september 2026 08:01 „Ég verð að fara á fund.“ „Ég þarf að svara þessum tölvupóstum.“ „Ég verð að elda kvöldmat.“ Kannski eru þetta saklaus orð. En hvað ef þau gera meira en við höldum? Hvað ef þau auka álag og draga úr vellíðan? Flest gerum við okkur ekki grein fyrir því hversu mikið við ráðum yfir eigin líðan. Við tengjum hamingju oft við ytri aðstæður sem við höfum takmarkaða stjórn á. En stór hluti hennar býr í orðunum sem við veljum. Eitt það einfaldasta og um leið það vanmetnasta sem við getum gert er að veita orðavali okkar athygli. Orð eru ekki bara orð; þau eru skilaboð til heilans. Þau móta hvernig við upplifum daginn og, að lokum, hvernig við upplifum lífið. Tungumálið mótar hugsanir okkar og viðbrögð Rannsóknir í sálfræði, taugavísindum og atferlishagfræði sýna að orðaval okkar hefur bein áhrif á hugsanir okkar, viðbrögð og upplifun. Daniel Kahneman, Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði, sýndi fram á að það hvernig við „römmum inn“ aðstæður (framing) getur gjörbreytt upplifun okkar. Smávægileg orðalagsbreyting getur fært verkefni úr pressu yfir í tækifæri. Skoðum einfalt dæmi. Það er munur á því að segja: „Ég verð að klára þetta fyrir hádegi“ og „Ég ætla að klára þetta fyrir hádegi“. Fyrri setningin kallar fram tilfinningu um skyldu og utanaðkomandi þrýsting. Seinni setningin gefur til kynna eigin ákvörðun og stjórn. Verkefnið er hið sama en tilfinningin allt önnur. Málfræðingurinn George Lakoff hefur sýnt að tungumál er ekki hlutlaust tæki til að lýsa veruleikanum, það mótar hann. Í bók sinni Metaphors We Live By lýsir hann því hvernig myndlíkingar og orðræða hafa áhrif á hvernig við skiljum okkur sjálf, aðstæður okkar og heiminn. Þegar við segjum „ég þarf“ setjum við okkur í hlutverk manneskju undir pressu. Þegar við segjum „ég vel“ styrkjum við upplifun af stjórn. Martin Seligman, einn af upphafsmönnum jákvæðrar sálfræði, hefur jafnframt bent á að meðvituð breyting á hugsun og tungumáli getur aukið vellíðan og seiglu. Með því að færa fókusinn frá skyldu yfir í tilgang má draga úr spennu og styrkja tilfinningu um merkingu og stjórn. „Ég ætla að elda nærandi kvöldmat“ ber annan blæ en „Ég þarf að elda kvöldmat.“ Við þurfum sjaldnast að gera neitt Við tölum okkur oft ósjálfrátt inn í álag. Þegar við segjum „Ég þarf að gera þetta,“ fer heilinn í skylduham og túlkar verkefnið sem byrði, eitthvað sem er þröngvað upp á okkur. Heilinn heyrir kröfu þar sem við gætum heyrt val. Jafnvel einföld dagleg verkefni geta þannig orðið óþarflega íþyngjandi. En hér er sannleikurinn: við „þurfum“ sjaldnast að gera neitt. Við erum alltaf að velja, jafnvel þegar okkur finnst við ekki hafa val. Við þurfum vissulega að lifa með afleiðingum ákvarðana okkar, og þær endurspegla gildi okkar, markmið og forgangsröðun eða það líf sem við viljum skapa. Þú þarft ekki að mæta á fundinn. Þú gætir sleppt honum. En þú velur að mæta vegna þess að þú vilt hafa áhrif eða standa við skuldbindingar þínar. Þegar þú viðurkennir þetta breytist orkan. „Ég þarf“ verður að „ég vel“ „mig langar“ eða „ég ætla“. Með einfaldri orðalagsbreytingu hættum við að bregðast við lífinu og byrjum að taka virkan þátt í því. „Ég þarf að eiga þetta samtal“ verður að „Ég vel að eiga þetta samtal því það skiptir mig máli“. Þá færist orkan úr þvingun í meðvitað val. Skyndilega erum við ekki lengur fórnarlömb dagatals, verkefnalista eða væntinga annarra heldur bílstjórar í eigin lífi. Dæmi um breytt orðaval •Í stað „Ég þarf að klára þetta verkefni“ prófaðu: „Ég ætla að klára þetta verkefni til að standa við skuldbindingar mínar.“ •Í stað „Ég þarf að mæta á þennan fund“ prófaðu: „Ég vel að mæta á fundinn til að hafa áhrif.“ •Í stað „Ég þarf að hreyfa mig“ prófaðu: „Ég vel að hreyfa mig til að styrkja líkamann“. Þetta snýst ekki um að láta eins og allt sé skemmtilegt heldur um að færa fókusinn frá því að „þurfa“ yfir í „að velja“. Eða frá því að upplifa sig fasta(n) yfir í að upplifa sig við stýrið. Vellíðunarverkefni vikunnar Veldu þrjú „ég þarf“ verkefni úr daglegu lífi og skrifaðu þau upp á nýtt sem „ég vel“, „ég ætla“ eða „ég fæ“. Veldu setningar sem þú notar reglulega, sérstaklega þær sem vekja spennu eða skyldutilfinningu. Spurðu þig síðan: •Finnst mér léttara yfir þegar ég vel meðvitað? •Finnst mér ég hafa meiri stjórn á verkefninu og hvernig ég mæti því? •Finnst mér verkefnið minna íþyngjandi þegar ég tengi það við tilgang eða gildi? Lítil orðalagsbreyting getur haft óvænt áhrif. Hún getur aukið valdeflingu, mildað sjálfvirkt streituviðbragð og minnt þig á að þú ert höfundur eigin lífs, ekki áhorfandi á hliðarlínunni. Með hverju orði veljum við ekki aðeins hvernig við tölum, heldur hvernig við lifum. Greinarhöfundur er leiðbeinandi hjá Þekkingarmiðlun og með meistaragráðu í hagnýtri jákvæðri sálfræði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingrid Kuhlman Mest lesið Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir F. J. Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson Skoðun Betri (umferðar) borg fyrir börn Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir F. J. skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson skrifar Skoðun Utanríkisráðherra hefur ekki slíkan rétt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Friðarsúlan er langt frá því að vera friðartákn fyrir náttúruna Kristján Kristjánsson skrifar Skoðun Mikilvægi samstarfs á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason skrifar Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver á að gæta varðanna í Róm? Páll Ásgrímsson skrifar Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Betri (umferðar) borg fyrir börn Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvað viðheldur ójöfnuði milli kynslóða á Íslandi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tökum stjórn á framtíðinni Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar Skoðun Er mikið umframboð á fasteignamarkaði? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
„
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir F. J. skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar
Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun