„Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 5. september 2026 12:33 Anna Hildur Guðmundsdóttir, fomaður SÁÁ. vísir Formaður SÁÁ gefur lítið fyrir þá gagnrýni sem hún og stjórn samtakanna hafa mætt síðustu daga og segir ekkert til í því að hún hafi logið að starfsmönnum.
Þóra Björk Ingólfsdóttir, fráfarandi fagstjóri á Vík, meðferðarstöð SÁÁ, steig fram í gær og fordæmdi vinnubrögð stjórnar SÁÁ. Hún sagði það fullreynt að heilbrigðisþjónusta sem þessi sé á forræði félagasamtaka og lýsti miklum áhyggjum af framtíð meðferðarstarfsins. Anna Hildur Guðmundsdóttir, formaður SÁÁ, segir starfsemi SÁÁ þó enn standa styrkum fótum. „Ég er nú ekki sammála því, vegna þess á síðustu fjórum árum hefur SÁÁ farið í gegnum miklar breytingar og við höfum tekið í gegn allar okkar samþykktir og tilgang. Við höfum farið í mikla vinnu tengda skipuriti til að tryggja að það sem gerðist fyrir sex árum gerist ekki aftur.“ Þóra sakaði Önnu um að hafa logið þegar hún sagðist ekki hafa fengið fregnir af því að Valgerður Rúnarsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, hafi sagt upp störfum. „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið. Það kom mér í opna skjöldu að hún væri búin að segja af sér. Ég vissi að hún væri komin í leyfi og það var kominn samningur á bak við það, en ég vissi ekki að hún hefði sagt upp störfum.“ Valgerður sagði upp í kjölfar þess að starfslokasamningur var gerður við Ragnheiði Huldu Friðriksdóttur, fráfarandi forstjóra SÁÁ. Fráfarandi fagstjóri á Vík sakar SÁÁ um að hafa óeðlileg afskipti af faglegu meðferðarstarfi og að starfslokasamningurinn hafi verið gerður í óþökk allra. „Þáverandi forstjóri kom á fund með mér og varaformanninum og óskaði eftir að segja upp og lagði fram tillögu um starfslokasamning sem við urðum að. Við metum það þannig að hún hafi sagt upp störfum sínum, sem hún gerði. Ég skil vel að breytingar eru erfiðar og vekja upp sterkar tilfinningar og það koma auðvitað fram ólík sjónarmið en það breytir samt ekki þeirri ábyrgð sem að við í stjórn berum gagnvart SÁÁ. Við verðum stöðugt að tryggja að starfsemin haldi áfram, það er okkar meginmarkmið. Þannig að ég tel ekki að þegar einstaklingar óska eftir að fá að hætta í vinnunni sinni að við getum í raun og veru gripið inn í það.“ Hún segir slæmt umtal og gagnrýni hafa áhrif á starfsemi samtakanna. „Já, auðvitað gerir það það. Annað væri óeðlilegt. Við erum öll mannleg. Það er bara mjög eðlilegt að svona tal er erfitt og það verður bara að vinna út úr því. Ég bara óska þess að við fáum tækifæri til þess að komast í gegnum þetta.“ Hún segist vongóð um að málið muni eiga farsælan endi og treystir því að starfsemi haldi sömu gæðum. „Ég hef falið forstjóranum að tryggja að starfsemin gangi sinn besta gang, af því að það sem skiptir mestu máli er að þeir sem fá þjónustu frá okkur fái bara örugga og góða þjónustu. Það er það sem er mikilvægast akkúrat núna, að tryggja að starfsemin gangi áfram. Mér finnst það skipta mestu máli að starfsfólk fái starfsfrið til að sinna sinna skjólstæðingunum okkar.“ Hvaðan telurðu að þetta ósætti komi? Er þetta persónulegt eða er þetta út frá þeim skipulagsbreytingum sem hefur verið ráðist í? „Ég vil ekki fara djúpt í þetta. Það eru ákveðnir hlutir í vinnslu og ég vil bara að við fáum tækifæri til að vinna það. Ég ætla ekki að fara í einstök mál að sinni,“ segir hún og telur að ósætti heyri til undantekninga.
SÁÁ Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Fleiri fréttir Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Sjá meira