Körfubolti

Hætti er liðið sótti rúss­neskan leik­mann

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kate Koval í leik með LSU.
Kate Koval í leik með LSU. vísir/getty

Úkraínska körfuboltakonan Kate Koval hjá LSU-háskólanum í Bandaríkjunum var ekki par sátt er skólinn kynnti til leiks nýjasta leikmann liðsins.

Sú heitir Anna Minaeva og er tvítug, rússnesk stúlka. Koval gat ekki hugsað sér að spila með Rússa.

„Faðir minn er í úkraínska hernum og er afar stoltur af því að verja landið gegn árásum Rússa,“ sagði Koval.

„Fólk sem ég þekki hefur verið drepið í stríðinu af Rússum. Bæir þar sem ég steig mín fyrstu skref í körfubolta hafa verið eyðilagðir af Rússum. Engu að síður var þetta erfið ákvörðun en ég verð að standa með sjálfri mér og mínum gildum.“

Koval átti að vera byrjunarliðsmaður hjá LSU í vetur. Búið er að loka glugganum fyrir skipti milli skóla en Koval vonast eftir því að NCAA sýni henni skilning og leyfi henni að semja við annan skóla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×