Innlent

Langreyðarkvótinn mun tæp­lega nást

Kristján Már Unnarsson skrifar
Hvalur dreginn upp á vinnsluplanið í Hvalfirði í byrjun vertíðar í lok júnímánaðar. Alls hafa 72 langreyðar veiðst í sumar til þessa.
Hvalur dreginn upp á vinnsluplanið í Hvalfirði í byrjun vertíðar í lok júnímánaðar. Alls hafa 72 langreyðar veiðst í sumar til þessa. Vísir/Vilhelm

Hvalbátarnir tveir, Hvalur 8 og Hvalur 9, lönduðu fjórum langreyðum í fyrradag, tveimur hvölum hvor, til vinnslu í Hvalfirði. Þar með hafa samtals 72 langreyðar veiðst á vertíðinni en þeim fyrstu var landað í hvalstöðinni þann 26. júní síðastliðinn.

Vegna brælu á miðunum hafa hvalbátarnir beðið átekta í Hvalfirði frá því á miðvikudag. Veður er að ganga niður og má búast við að þeim verði báðum siglt aftur út til veiða síðar í dag, samkvæmt upplýsingum fréttastofu.

Farið er að síga á seinni hluta hvalvertíðarinnar. Veiðunum hefur í seinni tíð venjulega lokið í síðari hluta septembermánaðar þótt stundum hafi þær teygst inn í októbermánuð. Það ræðst þó mest af veðri og veðurhorfum en á þessum árstíma verða brælur tíðari auk þess sem birtutíminn styttist verulega.

Frá hvalstöðinni í Hvalfirði. Búast má við að hvalvertíðinni ljúki undir lok mánaðarins.Vísir/Egill

Ólíklegt þykir að langreyðarkvóti ársins, upp á 116 dýr vestanlands, muni nást. Úr þessu fer jafnframt að verða hæpið að veiði sumarsins nái eitthundrað dýrum.

Þótt heildarkvótinn hafi verið upp á 150 dýr skilyrti ráðherra að 34 þeirra skyldu veidd austanlands. Sú veiði þykir ekki raunhæf vegna fjarlægðar og langs siglingatíma frá vinnslustöðinni í Hvalfirði.


Tengdar fréttir

Segir upphaf hvalvertíðar vera gleðitíðindi: „Peningarnir detta ekki af himnum ofan“

Fyrstu langreyðarnar, sem veiðst hafa við Íslandsstrendur í þrjú ár, eru væntanlegar á land í Hvalfirði í nótt. Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir upphaf hvalvertíðar gleðitíðindi, venjulegt verkafólk geti fengið allt að tvær milljónir króna í laun á mánuði. Þá segir hann að það yrði illa farið fyrir Íslendingum ef „öfgaskoðanir öfgafólks“ færu að hafa áhrif á ákvarðanatökur.

„Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“

Landhelgisgæslan er í viðbragðsstöðu vegna mögulegrar komu skipsins Bandero til Íslands. Í myndbandi sem birt var á Facebooksíðu samtaka Paul Watson í gær segir hann að allt verði gert til að koma í veg fyrir að veiddir verði hvalir á meðan samtökin eru á Íslandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×