NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar 29. ágúst 2026 09:30 Þegar upplýsingaflóðið er orðið svo mikið að aðeins þeir sem engu öðru hafa að sinna ná að stinga höfðinu upp úr og draga andann, er rétt að reyna að draga fram aðalatriði. NEI felur í sér þá afstöðu að rétt sé að Íslandi sé, eftir sem áður, stjórnað af fólki sem valið er af kjósendum á Íslandi. Standi vilji Íslendinga til að skipta um stjórnendur er hægt um vik að gera það á nokkurra ára fresti. NEI felur í sér, að eftir sem áður muni stjórn utanríkisverslunar og annarra utanríkismála vera í höndum Íslendinga og Íslendingar munu sjálfir fara með stjórn náttúruauðlinda til lands og sjávar. Íslendingar munu ávallt geta ákveðið að hvaða marki þeir kjósa að vinna með Evrópusambandinu eða öðrum þjóðum. Það á við um ótal verkefni, þar á meðal hermál. JÁ, er upphaf að vegferð sem miðar að því að erlendir aðilar sem ógjörningur er fyrir Íslendinga að kjósa burt, setji Íslandi lög og reglur. Evrópusambandið stefnir að því að verða sambandsríki og hefur á undanförnum áratugum sótt sér sífellt meira vald til aðildarríkja og neitunarvald þeirra hefur smám saman horfið í hverjum málaflokknum á fætur öðrum. Ómögulegt er að vita hvernig valdi Evrópusambandins verður beitt í framtíðinni, en ljóst er að hagsmundir Íslendingar hefðu þar lítil sem engin áhrif. NEI lokar engum dyrum. Evrópusambandið mun alltaf vilja Ísland. Ísland mundi borga mikið með sér, veita sambandinu aðgang að mikilvægum auðlindum og aukin ítök á norðurslóðum. Síðast en ekki síst yrði Ísland skrautfjöður í hatti Evrópusambandsins því innganga Íslands væri staðfesting á að það væri eftirsóknavert að vera í sambandinu, jafnvel þótt það kostaði mikið. JÁ hallar aftur dyrunum að umheiminum, þar sem um 95% af íbúum jarðar á heima. Ef Ísland gengi í Evrópusambandið, réði sambandið með hvaða hætti viðskiptum Íslands við umheiminn yrði háttað. Hætt er við að framleiðendur í Evrópusambandinu muni vilja gæta hagsmuna sinna með því að hafa dyrnar í hálfa gátt, til að geta skellt í lás þegar þeir telja að það sé best. Nú þegar eru dyr Íslands að umheiminum að miklu og mikilvægu leyti opnari en dyr Evrópusambandins og óvíst er að það breytist. Það sem máli skiptir er að við þurfum að hafa lykilinn að þessum dyrum í okkar eigin vasa. Síðast, en ekki síst, eru dyr Evrópusambandsins þeirrar náttúru að sambandið er rúmt inngangs, en þröngt brottfarar. Höfundur er formaður Heimssýnar, félags um fullveldi Íslands Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Haraldur Ólafsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar