Staðfesta rúmlega áttatíu uppsagnir Áróra L Davíðsdóttir skrifar 25. ágúst 2026 15:33 32 borgarstarfsmenn munu fá boð um ný eða breytt störf hjá borginni en 54 starfsmenn munu ekki fá áframhaldandi starf. Vísir/Vilhelm Skipulagsbreytingar Reykjavíkurborgar leiða til uppsagna 86 starfsmanna borgarinnar. Af þeim fá 32 boð um ný eða breytt störf en 54 starfsmenn munu ekki fá áframhaldandi starf. Þeirra á meðal eru 22 stöðugildi sem lögð verða niður.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg en greint var frá því í morgun að tugum borgarstarfsmanna hefði verið sagt upp vegna skipulagsbreytinga. Þeirra á meðal eru 22 stöðugildi sem verði lögð niður þegar samningur borgarinnar við ríkið vegna samræmdrar móttöku flóttamanna renni út um áramót. Borgarráð hafi í dag samþykkt tillögu borgarstjóra um umfangsmiklar breytingar á stjórnskipulagi velferðarsviðs og skóla-og frístundasviðs og muni ný skipurit taka gildi þann 1. september 2026. Borgarráð fundar venjulega á fimmtudögum en ráðið fundaði aukalega í morgun. Breytingarnar feli í sér nýtt þjónustu- og stjórnskipulag á velferðarsviði og skóla-og frístundasviði. Þar verði stjórnskipulag einfaldað, stjórnendum fækkað og þjónusta í auknum mæli skipulögð eftir faggreinum. Stjórnendum og millistjórnendum var fækkað en framlínustörf voru varin, segir í tilkynningu. Með hinu nýja skipulagi verði áfram lögð megináhersla á nærþjónustu við íbúa í hverfum, skóla og frístundastarf. Verkefni og þjónusta miðstöðvanna, frístundamiðstöðvanna, Keðjunnar og Virknihúss verði færð inn í nýtt skipulag sem byggi á þjónustuþörfum íbúa, faglegri sérhæfingu og samræmdri þjónustu þvert á borgina í stað landfræðilegrar hverfaskiptingar. Áætlað sé að breytingarnar skili um 900 milljóna króna hagræðingu á ársgrundvelli þegar þær hafa að fullu komið til framkvæmda. Áhrifa muni gæta af fækkun stöðugilda, breytingum á stjórnskipulagi og lægri húsnæðiskostnaði. Fréttin er í vinnslu.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Fleiri fréttir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Sjá meira