Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 25. ágúst 2026 12:18 Ásgeir Pétursson minkabóndi ætlar sér að koma starfseminni aftur í gang sem fyrst. Vísir/Lýður Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur framkvæmt handtökur í tengslum við innbrotið í minkabúið í Mosfellsdal. Ekki hefur þó verið farið fram á gæsluvarðhald yfir neinum. Bóndinn segir mikið uppbyggingarstarf fram undan en mikilvægt sé að fá ný dýr til landsins.
Það var í lok júlí sem brotist var inn í minkabúið Dalsbú í Mosfellsdal og mörg þúsund minkum var sleppt lausum. Öryggisgirðingar komu í veg fyrir að langflest dýrin kæmust út af svæðinu en á milli fimm og sex hundruð dýr sluppu út. Lögregla hefur síðan rannsakað málið svo og tvö önnur innbrot í eldisbú, Reykjabú sem er hænsna- og kalkúnabú í Mosfellsbæ og svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi. Hildur Rún Björnsdóttir, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að málin séu óupplýst en unnið sé að rannsókn þeirra. Framkvæmdar hafi verið handtökur og fólk sem grunað er um að tengjast verknaðinum í Mosfellsdal hafi verið yfirheyrt. Ekki hefur þó verið farið fram á gæsluvarðhald yfir neinum. Hún vill ekkert gefa upp á þessari stundu um hversu margir hafi verið handteknir í tengslum við málin en segir að unnið sé að því að yfirfara síma- og tölvugögn. Talið er að tekist hafi að fanga flest dýrin sem sluppu út fyrir öryggisgirðingarnar en þeim var fargað. Þau sem voru innan girðinganna eru aftur komin í húsin. Ásgeir Pétursson eigandi Dalsbús segir ríflega ellefu þúsund minka nú í búinu. Fram undan sé mikið uppbyggingarstarf. Starfsemin sé í fimm húsum en dýrum var hleypt út úr fjórum þeirra. Við það blönduðust stofnar saman sem geri stöðuna snúna. „Núna vitum við ekkert um hver er, hvaða dýr eru sem sagt skyld, þannig að við getum ekki parað þetta svona saman eins og þetta er. Við erum að gera okkur vonir um það að geta keypt dýr erlendis frá til þess að halda þessum fjölskyldum aðskildum, þannig að við erum bara, eins og ég orðaði það, við erum bara á byrjunarreit. Öll ræktunin fór í vaskinn.“ Hann segir að nú í haust verði byrjað að flokka dýrin. „Ef við fáum þessi dýr flutt inn þá hefst nýtt framleiðsluár í desember. Þá erum við búin að flokka allavega að minnsta kosti þau dýr sem við getum og erum nokkuð örugg með að geta nýtt okkur áfram og para með nýjum högnum sem við fáum til landsins, því það er ekkert minkabú í landinu nema bara við og þá hefst nýtt framleiðsluár í mars á næsta ári. Þá er pörunartími.“ Þá segist hann staðráðinn í því að koma starfseminni aftur í gang. „Ég hef alltaf sagt það að ég gefst ekki fyrir glæpamönnum.“ Ljóst sé miðað við umfang verknaðarins að margir hafi komið að honum. „Náttúruverndarsamtök og hérna dýraverndunarsamtök og öll þessi samtök sem eru svona það er ábyggilega mjög gott markmið af þessu sem þetta fólk er að gera. En það má ekki gleyma því að bændurnir vita langbest um dýrin og hvernig þeir hafa dýrin og hvernig þeir rækta dýrin sín. Við erum mestu dýraverndunarsinnarnir. Við vitum það að ef við förum ekki vel með dýrin okkar þá fáum við ekki afurðir. Það bara liggur alveg ljóst fyrir.“
Minkum sleppt í Mosfellsdal Loðdýrarækt Dýr Dýraheilbrigði Mosfellsbær Innbrot í kjúklinga-, svína- og minkabú Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Fleiri fréttir Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Sjá meira