Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Smári Jökull Jónsson skrifar 25. ágúst 2026 08:00 Þúsundum lundapysja er bjargað í Eyjum á hverju hausti. Vísir/Smári Jökull/Sea Life Trust Lundapysjutímabilið stendur sem hæst þessa dagana í Vestmannaeyjum en björgun lundapysja er einn af hápunktunum hjá ungviðinu í Eyjum ár hvert. Fréttastofan kíkti til Eyja og fylgdist með pysjubjörgun og eftirliti.
Lundapysjutímabilið hefst yfirleitt upp úr miðjum ágúst og stendur fram í september. Pysjurnar leita þá í ljósin í bænum úr fjöllunum hér í kring, þeim er bjargað af götunum svo hægt sé að hjálpa þeim út í sjó á nýjan leik. Klippa: Pysjutíminn kominn Pysjurnar fara á stjá á kvöldin og hópast krakkarnir í Eyjum þá út til að leita að pysjum sem þarf að bjarga. Áður en þeim er sleppt er mælst til að pysjurnar séu vigtaðar og þær skráðar hjá Pysjueftirlitinu svokallaða sem hefur verið starfrækt frá árinu 2003. Við aðstöðu Pysjueftirlitsins er búið að setja upp vigtunarstöð.Vísir/Smári Jökull „Það hjálpar okkur mikið og lundabyggðunum því þetta er tegund í útrýmingarhættu. Hver einasti fugl sem við björgum er stór sigur,“ segir Barbara Stefanutti starfsmaður Sea Life Trust sem kemur að Pysjueftirlitinu. Læknisskoðun áður en þeim er sleppt Starfsmenn Pysjueftirlitsins aðstoða við að skoða pysjurnar og sjá hvort þær séu tilbúnar að fara út á sjó. „Við athugum hvort vængirnir séu í lagi, engin beinbrot, hvort hreyfanleiki fótanna sé í lagi, að þær séu ekki of léttar, engir áverkar á goggnum. Ekkert að.“ Barbara vinnur hjá Sea Life Trust sem aðstoðar við pysjueftirlitið.Vísir/Smári Jökull „Ef þær eru heilbrigðar má sleppa þeim og þær fara beint út á sjó. Ef ekki, dvelja þær hjá okkur á spítalanum,“ bætir Barbara við. Sýnikennsla í sleppingu Þegar búið er að skrá og vigta pysjurnar er komið að því að sleppa þeim. Vestur á Hamri er búið að útbúa nokkurs konar sleppisvæði og hér geta pysjurnar náð góðu flugi út í sjó. Hvað eruð þið búin að finna margar lundapysjur í ár? „Við fundum sjö í gær og í fyrradag fundum við tvær,“ sagði Þórlaug Jenný Ágústsdóttir sem var ásamt bróður sínum að sleppa pysjum. Systkinin Ágúst og Þórlaug Jenný voru í óða önn að sleppa lundapysjum.Vísir/Smári Jökull Lárus sýndi síðan hvernig fara ætti að þegar pysjunum er sleppt. „Maður þarf að fara undir vænginn, passa að vængirnir séu svona,“ segir Lárus um leið og pysjan blakar vængjunum. „Það er líka hægt að skutla þeim svona,“ segir Lárus. Sjón er sögu ríkari en alla fréttina má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Vestmannaeyjar Fuglar Dýr Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira