Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Kjartan Kjartansson skrifar 24. ágúst 2026 10:57 Reykur frá sviðnuðu túni í Waimes í Belgíu fyrr í síðustu viku. Gamlir vígvellir úr heimsstyrjöldunum tveimur hafa brunnið í sumar og löngu grafnar sprengjur sprungið AP/Marius Burgelman Gróðureldar sem hafa geisað í þurrki og hitabylgjum í Evrópu í sumar hafa tendrað í gömlum sprengjum úr fyrri og seinni heimsstyrjöldinni. Tilkynnt hefur verið um sprengingar í nokkrum Evrópulöndum í sumar.
Ríflega 600.000 hektara lands hafa brunnið í hátt í tvö þúsund gróðureldum víðsvegar um Evrópu í sumar. Hver hitabylgjan hefur rekið aðra og árfarvegir hafa þornað upp í hlýindum sem loftslagsbreytingar af völdum manna magna upp. Dæmi eru um að gamlar sprengju úr heimsstyrjöldunum tveimur á fyrri hluta 20. aldar sem voru grafnar í jörðu eða faldar í gróðri hafi sprungið í hitanum af eldunum. AP-fréttastofan segir að tilkynnt hafi verið um slíkar sprengingar í Frakklandi, Þýskalandi, Belgíu og Hollandi. Í Limburg í Hollandi hafi sprengjusérfræðingar verið kallaðir til þegar gróðureldur nálgaðist skóglendi þar sem hörð hildi var háð í seinna stríði árið 1944. Árlega finnast hundrað sprengja úr heimsstyrjöldunum í Belgíu á borð við þessar. Þær sem eru merktar með bleikum lit eru taldar gassprengjur.AP/Geert Vanden Wijngaert Nærri Bordeaux í Suðvestur-Frakklandi afhjúpuðu gróðureldar vopnabúr með skotfærum sem eru talin frá síðari heimsstyrjöldinni og í Liege í austanverðri Belgíu hafa sprengingar heyrst við og við í sumar. Eldur logar meðal annars í Hautes Fagnes, vernduðum votlendisskógi sem nær yfir landamæri Belgíu og Þýskalands. Alls kyns sprengjur, jarðsprengur og sprengjugildrur voru lagðar þar í seinni heimsstyrjöldinni. Ardennasókn Þjóðverja fór í gegnum og í kringum skóginn. „Þegar þú ferð inn í skóg eins og þennan geturðu ekki verið viss um hvar sprengjurnar eru,“ segir Bernard Collard, sagnfræðingur sem rekur stríðsminjasafn í Belgíu um Hautes Fagnes. Finnast einnig í uppþornuðum árfarvegum Það eru ekki aðeins gróðureldarnir sem endurvekja hættuna af vopnum frá blóðugustu árum mannkynssögunnar. Þannig fundust tvö tundurdufl í Slóvakíu þegar verulega minnkaði í Dóná í þurrki í sumar. Í Búdapest í Ungverjalandi fannst sprengja frá síðari heimsstyrjöld við stólpa Margrétarbrúarinnar yfir Dóná. Þegar Rínarfljót í Þýskalandi þornaði upp kom sprengja úr seinna stríði einnig í ljós. „Loftslagsbreytingar eru núna að grafa upp og virkja á ný það sem var áður stöðugt,“ segir Sarah Njeri, sérfræðingur í átaka- og friðarfræðum við University of London.
Fyrri heimsstyrjöldin Seinni heimsstyrjöldin Loftslagsmál Frakkland Þýskaland Belgía Holland Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira