Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar 24. ágúst 2026 08:53 Mann setur hljóðan að sjá hve Nei-sinnar gerast kræfir á lokasprettinum í áróðursstríði sínu. Nýjasta útspilið er umfangsmikil auglýsingaherferð þar sem fullyrt er að ESB-aðild muni kosta Íslendinga 50–100 milljarða króna á ári. Þessar tölur standast hins vegar enga skoðun. Aðferðin ætti að vera kunnugleg. Þetta er sama aðferð og Brexit-sinnar beittu í Bretlandi: að slá fram gríðarlegum upphæðum rétt fyrir atkvæðagreiðslu til að hræða kjósendur. Eftir kosningarnar reyndust ýmsar af stærstu fullyrðingunum hins vegar rangar og forsvarsmenn Brexit viðurkenndu sjálfir að þær hefðu verið settar fram í áróðursskyni. Nú hefur utanríkisráðuneytið stigið inn og leiðrétt þessar fullyrðingar Nei sinna á Íslandi. Við mat á kostnaði við ESB-aðild þarf að horfa á heildarmyndina: bein framlög Íslands, það sem við fengjum til baka úr sjóðum ESB og þann kostnað sem myndi falla niður vegna breytinga á EES-samstarfinu. Það sem skiptir máli er nettóframlagið – ekki einhver upphæð sem tekin er úr samhengi. Samkvæmt utanríkisráðuneytinu gætu bein framlög Íslands numið um 8–13 milljörðum króna á ári. Hugveitan Evrópustraumar hefur jafnframt metið mögulegt nettóframlag á um 6–9 milljarða á ári. Til samanburðar greiðir Ísland nú þegar um 8 milljarða króna árlega vegna EES-samstarfsins. Enn fremur er ekki tekið tillit til ýmissa efnahagslegra áhrifa í þessum einföldu útreikningum, svo sem á lánskjör ríkissjóðs, viðskiptakostnað og vaxtakjör heimila og fyrirtækja. Brúttó- eða nettóframlög segja því aðeins hluta sögunnar. Það er sérstaklega athyglisvert í ljósi þess að íslenska ríkið þarf árlega að leggja umtalsverðan kostnað í að halda úti gjaldeyrisvarasjóði til stuðnings íslensku krónunni. Sá kostnaður hefur verið áætlaður 20–30 milljarðar króna á ári. Þeir sem tala um kostnað ESB-aðildar ættu því að sýna þá tölu líka þegar þeir ræða kostnaðinn við núverandi fyrirkomulag. Íslendingar eiga auðvitað rétt á að vita hvað ESB-aðild kostar. En þeir eiga líka rétt á að vita hvað hún gefur og hvað núverandi fyrirkomulag kostar. Eina leiðin til að fá raunverulegar tölur og staðreyndir upp á borðið er að ljúka aðildarviðræðum og láta kjósendur síðan taka upplýsta ákvörðun. Þess vegna er Já eina leiðin til að komast að því hvað samningur við ESB myndi í raun fela í sér. Höfundur er með M.Sc.-gráðu í Evrópufræðum frá London School of Economics og hefur yfir 30 ára reynslu af Evrópusamstarfi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Andrés Pétursson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar