Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Ágúst Orri Arnarson skrifar 22. ágúst 2026 09:58 Liam Tilton vonar að hann fái betra veður þegar hann fer í fjallgöngu hér á Íslandi. vísir / viktor Bandaríkjamaðurinn Liam Tilton var fyrstur í mark í hálfu maraþoni karla í Reykjavíkurmaraþoni en hann hafði aldrei hlaupið jafn langt áður.
Tilton vann hálfa maraþonið í Reykjavík með nokkrum yfirburðum á tímanum 1:07:50 en hann var þremur mínútum á undan næsta manni, Davíð Frey Magnússyni, í mark en þess ber að geta að Davíð sló Íslandsmetið í sínum aldursflokki (18-19 ára). „Já þetta var í fyrsta sinn. Planið er að byrja að hlaupa maraþon núna, þannig að þetta var góð byrjun á maraþonferlinum,“ sagði Tilton í viðtali við Birnu Maríu Másdóttur, sem stýrir beinni útsendingu frá Reykjavíkurmaraþoninu. Hann sagði enga sérstaka ástæðu fyrir því að hann valdi Reykjavík fyrir sitt fyrsta hálfmaraþon. „Ég og fjölskyldan mín vildum bara skemmta okkur, skoða nýjan stað og taka þátt í hlaupinu.“ Tilton er nýútskrifaður úr Ruckers háskóla en þar hljóp hann í 5000 metra og 10.000 metra hlaupi. Nú sagðist hann ætla að taka hlaupin skrefinu lengra og skella sér í maraþon. „Núna þegar ég er útskrifaður er tímabært að taka þetta lengra,“ sagði Liam en hann ætlar líka að njóta íslensku nátturunnar meðan hann er hér á landi og skella sér í fjallgöngu. Hann vonast eftir betri veðri en var í dag. „Já vonandi. Það var mikill vindur í dag, en þetta var ekkert svo slæmt.“ Bandaríkjamaðurinn Liam Tilton var fyrstur í mark, í hálfu maraþoni karla, á tímanum 1:07:50.Davíð Freyr Magnússon var fyrstur Íslendinga í mark í hálfu maraþoni karla, þremur mínútum á eftir Liam, á tímanum 1:10:50.Hörð barátta var um þriðja sætið en Atli Jasonarson kom í mark nokkrum skrefum á undan Bandaríkjamanninum Tommy Struzzieri.VÍSIR / VIKTOR
Hlaup Reykjavíkurmaraþon Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Sjá meira