Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 21. ágúst 2026 20:00 Magnús Máni ásamt fjölskyldu sinni eftir hlaupið á síðasta ári. Geira Geirs Photography Foreldrar Magnúsar Mána opna sig um langa endurhæfingu hans eftir að hann skyndilega missti máttinn frá bringunni og niður. Endurhæfingin hefur falið í sér allt frá tíbetskum söngskálum í spænska hátæknimeðferð. Tugir hlaupa honum til stuðnings í Reykjavíkurmaraþoninu á morgun.
Lífið breyttist skyndilega hjá Magnúsi Mána árið 2023 þegar hann veiktist alvarlega. Magnús Máni var og er mikill íþróttamaður en sumarið 2023 þegar hann var þrettán ára missti hann skyndilega allan mátt og skynjun frá bringu og niður. Fjölskyldan var á leiðinni til útlanda en þess í stað blasti spítaladvöl við fjölskyldunni þegar Magnús Máni reyndist vera með bráða mænubólgu. Sigurbjörg Ýr Guðmundsdóttir og Magnús Helgason, foreldrar Magnúsar Mána, sögðu sögu sína í Heilsuhlaðvarpi Lukku og Jóhönnu Vilhjálms. Dagana áður hafði Magnús fundið fyrir flensueinkennum og bakverkjum. Sparkaði í bolta á ný Viku eftir að Magnús lagðist inn á sjúkrahús fékk fjölskyldan þær fréttir að líklegast myndi hann aldrei ganga á ný. Ævilöng dvöl í hjólastól stóð frammi fyrir honum. Sigurbjörg og Magnús segja að fréttirnar hafi verið mikið áfall. Á sama tíma og þau þurftu að takast á við áfallið hafi þau einnig þurft að takast á við erfiða stöðu í heilbrigðiskerfinu. Magnús Máni hafi farið í endurhæfingu á Grensás en þar hafi annars konar hugarfar mætt þeim en þau áttu að búast við. Endurhæfingin hafi frekar snúist um að „sætta sig við stöðuna eins og hún er“ í stað þess að stefna að stöðugum framförum og bata. „Þegar óvissan er algjör, þá er vonin það eina sem þú átt og þú verður að halda í hana.“ Sigurbjörg og Magnús segjast þess í stað hafa ákveðið að taka málin í eigin hendur og leituðu liðsinnis hjá Rahul Bharti, indverskum meðferðaraðila, og Peter, pólskum taugasérfræðingi. Áætlunina kölluðu þau Mount Everest-verkefnið en það fól í sér allt frá tíbetskum söngskálum í að grafa hann í sand á ströndinni til að virkja taugakerfið á ný. Samhliða þessu hafi Magnús Máni einnig sótt hátæknilega taugaendurhæfingu á Spáni. Þar tók hann þátt í stífri þjálfun í 26 vikur með nýjustu vélmennatækni. Foreldrarnir lýsa því að í nýjustu ferðinni hafi Magnús Máni verið spenntur í tæki sem léttir á líkamsþyngdinni og hafi hann þannig sparkað í bolta í fyrsta skipti í þrjú ár. Stærsti draumurinn að klára golfhring Þrátt fyrir spár og fréttir um að Magnús Máni myndi aldrei ganga á ný var það einungis hálfu ári síðar sem hann stóð á fætur og setti stjörnuna á jólatré fjölskyldunnar. Hann hafi einnig náð að ljúka tíunda bekk þrátt fyrir að hafa misst úr áttunda bekk vegna endurhæfingarinnar. Að sögn Sigurbjargar og Magnúsar notaði Magnús Máni einungis göngugrindina í skólanum og geymdi hjólastólinn úti í horni. Þau eru sérstaklega þakklát vinum Magnúsar Mána sem hafa aðstoðað hann við að komast á milli staða. Nú sé stefnan sett á skólagöngu í Verzlunarskóla Íslands í haust. Almennt gangi Magnús Máni um með göngugrind og æfi sig í að komast um á hækjum. Hann haldi endurhæfingunni áfram til að uppfylla sinn stærsta draum, að ganga óstuddur og spila heilan golfhring. Tugir milljóna í endurhæfingarkostnað Heildarkostnaður við endurhæfingu Magnúsar Mána er kominn upp í fjörutíu milljónir króna að sögn foreldranna og standi fjölskyldan að mestu leyti ein í að greiða það. Sjúkratryggingar Íslands hafi greitt um tíu prósent af endurhæfingunni í Spáni þrátt fyrir að sambærileg þjónusta sé ekki í boði á Íslandi. „Ráðamenn og forstjóri Landspítalans taka vel undir með okkur og eru sammála því að ríkið eigi að styðja betur við okkur, en niðurstaðan úr kerfinu er samt alltaf sú sama: nei.“ Þau áfrýjuðu ákvörðuninni sem var staðfest af úrskurðarnefnd velferðarmála en er málið nú komið á borð umboðsmanns Alþingis. Yfir sjö milljónir komnar í sjóð Á síðasta ári hlupu yfir 170 hlauparar sig í hlaupið til að styðja við Magnús Mána, þar á meðal hlaupakonan Elísa Kristinsdóttir. Magnús Máni gekk sjálfur síðustu tvö hundruð metra hlaupsins og yfir endamarkið, studdur af vinum og fjölskyldu. Þau ætla að endurtaka leikinn í ár til að fjármagna áframhaldandi endurhæfingu Magnúsar Mána. Á heimasíðu áheitasöfnunar fyrir Reykjavíkurmaraþonið eru rétt rúmlega sextíu hlauparar skráðir á áheitasíðu Magnúsar Mána. Þegar þessi grein er skrifuð eru áheitin upp á rúmar sjö milljónir króna. „Við þurfum öll mótstöðu til að vaxa og þroskast, alveg eins og vöðvi. Magnús á eftir að ná sínum Everest-toppi og við ætlum að standa þétt við bakið á honum alla leið,.“ Bæði Sigurbjörg og Magnús eru meðal hlaupara og ætla þau bæði að fara 10 kílómetra. Hægt er að heita á hlaupara í hópi Magnúsar Mána hér.
Reykjavíkurmaraþon Mest lesið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Sjá meira