Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni Sigurgeir Þorkelsson skrifar 20. ágúst 2026 08:09 Markmiðið er að skapa áfangastað í miðborginni. Batterí arkitektar Metnaðarfullt plan um endurgerð Kvosarinnar norðan Austurstrætis hefur litið dagsins ljós. Kvosin markast af Tjörninni í miðborg Reykjavíkur í suðri og Reykjavíkurhöfn í norðri. Hönnun verkefnisins er í höndum Batterísins arkitekta.
Byggingar á svæðinu eru í dag í eigu Eikar fasteignafélags og Landsbyggðar. Með endurbótunum verða byggingar á svæðinu betur tengdar saman með nýjum og skjólgóðum gönguleiðum og almenningsrýmum. Svæðið mun skarta sínu fegursta í aðdraganda jóla.Batteríið Svæðið hefur lengi skipað mikilvægan sess í Reykjavík og er þar í dag fjölbreytt starfsemi og byggð. Í tilkynningu segir að verkefnið muni varðveita sérkenni og sögu staðarins en um leið skapa forsendur fyrir traustri byggð, fjölbreyttri þjónustu og atvinnustarfsemi og kraftmiklu mannlífi. Í tilkynningu segir að Kvosin verði varðveitt og styrkt sem það einstaka svæði sem hún er. Gætt verði nærgætni með það að markmiði að gera góða miðborg enn betri. Með því að líta á svæðið sem eina heild skapist tækifæri til að styrkja samfellda göngutengingu frá Austurstræti, yfir Hafnarstræti og áfram að Tryggvagötu og höfninni. Gönguferðin í gegnum Kvosina verði hluti af upplifun miðborgarinnar sjálfrar, þar sem sögulegar byggingar, verslanir, veitingastaðir, þjónusta og ný almenningsrými fléttist saman. Almenningsrými verða búin til á jarðhæð húsanna.Batterí arkitektar Til standi að þróa húsin með virðingu fyrir sögu þeirra og staðsetningu og með það að markmiði að færa þeim nýtt líf í borgarmyndinni, til að mynda verði hluti verkefnisins að finna Landsbankahúsinu við Austurstræti nýtt hlutverk. Skapaðar verði aðgengilegri gönguleiðir, virkari jarðhæðir og rými þar sem fólk getur dvalið, hist og notið miðborgarinnar. Með opnari tengingum milli gatna skapist jafnframt tækifæri til að draga fólk inn á svæðið og inn í byggingar sem áður voru ekki opnar almenningi. Þannig verði svæðið að áfangastað en ekki aðeins leið til að komast á milli staða. Þessi fallegi gangur vekur sannarlega upp evrópsk hughrif.
Skipulagsmál Arkitektúr Reykjavík Mest lesið Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Stórfelldur niðurskurður fyrirhugaður í vegagerð Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Innlent Fleiri fréttir Braut reglur þegar hann minntist Steins Stórfelldur niðurskurður fyrirhugaður í vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Sjá meira