Sport

Williams mun spila í einliða leik á Opna banda­ríska risamótinu

Andri Broddason skrifar
Venus Williams mun leika í einliðaleik á Opna bandaríska risamótinu í tennis og líklegast í tvíliðaleik með systur sinni Serenu.
Venus Williams mun leika í einliðaleik á Opna bandaríska risamótinu í tennis og líklegast í tvíliðaleik með systur sinni Serenu. EPA/Thais Llorca

Venus Williams mun leika í einliðaleik á Opna bandaríska risamótinu í tennis. Einnig er möguleiki að systir hennar, Serena Williams, muni einnig spila.

Venus Williams hefur tvisvar unnið Opna bandaríska risamótið í tennis en hún náði því árið 2000 og 2001. Nú mun hún aftur síga fæti á völlinn en hún spilaði fyrst á mótinu fyrir 29 árum. Venus, sem er orðin 46 ára, hefur spilað af og til síðustu fjögur ár en hefur ekki unnið leik á þessu tímabili.

Einnig er möguleiki á að systir Venus, Serena Williams, muni leika í einliðaleik á mótinu. Hún er einn sigursælasti tennisspilari allra tíma og væri því söguleg endurkoma fyrir hana í sínu heimalandi. Hún hefur unnið 23 risamót á ferlinum og vann Opna bandaríska risamótið sex sinnum. Hún lék á Wimbledon-risamótinu fyrr í sumar en meiddist þar í fyrsta leik og tapaði.

Ekki er búið að tilkynna hvort að systurnar munu leika saman í tvíliðaleik á Opna bandaríska risamótinu en þær ætluðu að gera það á Wimbledon. Þær þurftu þó að draga sig úr keppni eftir að Serena meiddist í einliðaleik á sama móti.

Systurnar náðu þó að spila saman á Opna Cincinnati-mótinu en þær töpuðu með minnsta mun í fyrsta leik þerra síðan árið 2022.

Á síðasta ári tók Venus einnig þátt í mótinu, þá 44 ára, og varð þá elsti leikmaður í sögunni til að taka þátt í einliðaleik á Opna bandaríska risamótinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×