Sport

Al­veg viss um að NFL muni hafa lið utan Banda­ríkjanna

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Roger Goodell segir að NFL-deildin muni auka alþjóðleg umsvif sín á næstu árum.
Roger Goodell segir að NFL-deildin muni auka alþjóðleg umsvif sín á næstu árum. epa/CHRIS TORRES

Roger Goodell, yfirmaður NFL, er ekki í vafa um að í framtíðinni verði lið í deildinni sem er ekki með aðsetur í Bandaríkjunum.

NFL hefur verið að færa út kvíarnar og nema ný lönd á undanförnum árum. Frá og með tímabilinu 2027 verða tíu NFL-leikir utan Bandaríkjanna en á komandi tímabili verða þeir níu.

Goodell ræddi um alþjóðlegan vöxt NFL í nýlegu viðtali við RTL í Þýskalandi.

„Á einhverjum tímapunkti verða NFL-lið utan Bandaríkjanna. Ég efast ekki um að það muni gerast einn daginn,“ sagði Goodell.

Rætt hefur verið um að sjálfur Super Bowl muni einhvern tímann fara fram á erlendri grundu. Í viðtalinu við RTL sagði Goodell að fyrst yrði NFL-lið staðsett utan Bandaríkjanna áður en Super Bowl færi fram á erlendri grundu.

„Það eru klárlega alþjóðlegar borgir sem gætu haldið eitthvað slíkt. En við viljum fyrst sjá NFL-lið í slíkri borg,“ sagði Goodell.

Á næsta tímabili fara þrír leikir í NFL fram í London og einn í Melbourne, Ríó de Janeiro, París, Madríd, München og Mexíkó-borg.

NFL-tímabilið 2026 hefst með leik meistara Seattle Seahawks og New England Patriots 9. september næstkomandi.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×