Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Smári Jökull Jónsson skrifar 18. ágúst 2026 12:01 Sanna Magdalena Mörtudóttir er borgarfulltrúi Vinstrisins og fulltrúi í velferðarráði. Vísir/Vilhelm Borgarfulltrúi Vinstrisins hefur áhyggjur af því að tekjulægra fólk neiti sér um að kaupa máltíðir hjá Reykjavíkurborg í kjölfar gjaldskrárhækkana hjá borginni. Sparnað vegna uppsagna og niðurskurðar eigi að vera hægt að nýta til að velta ekki kostnaði vegna máltíðanna á íbúa.
Meirihluti velferðarráðs Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi sínum í siðustu viku tillögu um gjaldskrárhækkun á heimsendum mat og mat sem afgreiddur er í félagsmiðstöðvum og þjónustuíbúðum. Verð fyrir lífeyrisþega hækkar um 70% og verður 1900 krónur fyrir hverja máltíð. Í greinargerð meirihlutans segir að bregðast þurfi við þeirri staðreynd að gjaldskrá hafi verið langt undir kostnaðarverði. „Maður hefur áhyggjur af því að þetta geti verið útilokandi og hafi áhrif á tekjulægsta hópinn sem þurfi á næringarríkum og góðum mat að halda. Þetta er stór biti fyrir fólk sem hefur lítið á milli handanna,“ segir Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Vinstrisins og fulltrúi í velferðarráði. Hagræðingaraðgerðir ættu að þýða að kostnaður legðist ekki á íbúa Hún segir þennan hóp reiða sig á þessar máltíðir og þó fjárhagsleg staða einstaklinga innan hans sé mismunandi þá þurfi að tryggja að allir Reykvíkingar hafi aðgang að næringarríkum mat. „Maður hefur áhyggjur af því að þeir tekjulægstu dragi þá úr kaupum á máltíðum og að aðgengi að næringarríkum og reglulegum máltíðum skerðist ef fólk er farið að neita sér um að kaupa máltíðir eins oft,“ bætir Sanna við. Borgarráð hefur ekki tekið tillögur velferðarráðs fyrir en Sanna segir ljóst að meta hefði þurfti tillögurnar mun betur þó finna þurfi leiðir til að mæta auknum kostnaði við framleiðslu. „Í allri umræðunni um að það sér kominn nýr meirihluti sem hefur farið í ákveðnar aðgerðir sem hann kallar hagræðingaraðgerðir. Meðal annars sagt fólki upp og hætt ýmsum verkefnum og er að leggja áherslu á að rýna vel í hverja krónu, þá hefði maður haldið að það fjármagn sem kæmi út frá því að það hafi verið hægt að nýta það í að þá velta ekki kostnaðinum yfir á íbúa,“ segir Sanna og bætir við að hún sé hærdd um að þessi hópur láti ekki mikið í sér heyra. Lokað á Vitatorgi um helgar? Auk verðhækkana á máltíðum fyrir lífeyrisþega var lagt til að almennt verð máltíða fyrir aðra hækki um 25% sem Sanna segir eðlilegt. „Það eru reyndar fáir sem kaupa matinn þannig að það skiptir ekki miklu máli rekstrarlega séð.“ Sömuleiðis var lagt til að hætta við endurbætur á framleiðslueldhúsi borgarinnar á Vitatorgi. Því eldhúsi var lokað í febrúar eftir að listeríusmit kom upp og hefur þjónustunni verið útvistað síðan þá og mun verða áfram. Þá fékk fréttastofa ábendingu um að ekki verði lengur hægt að borða á Vitatorgi um helgar, borgin hafi verið tekin ákvörðun um lokun. „Ég heyrði þetta í athugasemd í gær en ég hafði ekki heyrt af þessu að þetta stæði til. Þetta hefur ekki verið lagt til á neinum fundi sem ég hef setið.“
Reykjavík Borgarstjórn Eldri borgarar Matur Kjaramál Félagsmál Mest lesið Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Stórfelldur niðurskurður fyrirhugaður í vegagerð Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Innlent Fleiri fréttir Braut reglur þegar hann minntist Steins Stórfelldur niðurskurður fyrirhugaður í vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Sjá meira