Á meðan þjóðin ræðir ESB er heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður Sigrún Guðmundsdóttir skrifar 17. ágúst 2026 07:02 Breytingarnar snerta ekki aðeins tilfærslu verkefna milli stjórnvalda heldur einnig mikilvægar heimildir sveitarfélaga til að bregðast við vandamálum í nærumhverfinu. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið birti 13. júlí síðastliðinn drög að breytingum á 57 reglugerðum vegna flutnings verkefna heilbrigðisnefnda og heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga til ríkisins um næstu áramót. Umsagnarfresturinn nær yfir megin sumarleyfistímann og er aðeins rúmar fimm vikur. Á þeim tíma eiga sveitarfélög, eftirlitsaðilar og aðrir hagaðilar að yfirfara tugi reglugerða og meta hvort ábyrgð, valdheimildir og framkvæmd verkefna verði nægilega skýr eftir 1. janúar 2027. Í tillögunum eru ákvæði felld brott, verkefni færð milli ríkis og sveitarfélaga og orðalagi breytt með þeim hætti að það hefur bein áhrif á möguleika stjórnvalda til að bregðast við mengun, óþrifnaði og slæmri umgengni. Sem dæmi má nefna heimildir til að fjarlægja númerslausar bifreiðar, bílflök og aðra lausamuni. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur áður áréttað að vörslusvipting og förgun eigna séu mjög íþyngjandi aðgerðir. Því þurfi bæði valdheimildir og heimildir til framsals þeirra að vera skýrar. Nú er lagt til að sveitarstjórnir taki við tilteknum verkefnum heilbrigðisnefnda samkvæmt reglugerð um meðhöndlun úrgangs. Það nægir þó ekki að skipta einu heiti út fyrir annað, þar sem heilbrigðiseftirliti er skipt út fyrir sveitarfélög. Það verður að vera hafið yfir vafa hvaða stjórnsýslueining má rannsaka mál, taka ákvörðun, veita fyrirmæli, fjarlægja hluti og innheimta kostnað. Einnig þarf að tryggja skýrar kæruleiðir og að þeir starfsmenn sem eiga að vinna verkefnin hafi ótvírætt umboð. Sama gildir um eftirlit með lóðum og lendum, úrgangi, fráveitum, dýrahaldi, hávaða og öðrum staðbundnum umhverfis- og hollustuháttamálum. Þessi verkefni hverfa ekki þótt heilbrigðisnefndir verði lagðar niður. Kvartanir íbúa munu áfram berast og einhver verður að bera ábyrgð á að bregðast við þeim. Samráðsgátt kemur ekki í stað faglegs samráðs Heilbrigðisnefndir og heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga eru enn lögbær stjórnvöld og bera ábyrgð á framkvæmd gildandi reglna til loka ársins 2026. Þar starfar jafnframt fólkið sem hefur mesta reynslu af því hvernig ákvæðin virka í framkvæmd, hvar veikleikarnir liggja og hvaða úrræði þurfa að vera til staðar. Almenn birting 57 reglugerðardraga í Samráðsgátt kemur ekki í stað beins og faglegs samráðs við þá sem nú sinna verkefnunum. Slíkt samráð er nauðsynlegt, bæði til að tryggja lögmæta og skilvirka framkvæmd fram að áramótum og til að koma í veg fyrir að göt myndist í nýju kerfi. Markmið um einföldun, samræmingu og aukna skilvirkni eru góðra gjalda verð. En einföldun felst ekki í því einu að fella brott ákvæði eða skipta út heitum stjórnvalda. Raunveruleg einföldun krefst skýrrar ábyrgðar, ótvíræðra valdheimilda, samræmdra verklagsreglna, nægilegrar sérþekkingar og þess að almenningur viti hvert hann á að leita. Sveitarfélög þurfa nú þegar að undirbúa sig fyrir þau verkefni sem hjá þeim verða eftir. Þau þurfa að vita hvaða heimildir þau fá, hvernig þær verða útfærðar, hvernig kostnaður verður fjármagnaður og hver ber ábyrgð þegar bregðast þarf hratt við. Þessum spurningum verður að svara áður en breytingarnar taka gildi – ekki eftir á. Umsagnarfrestur í máli nr. S-113/2026, „Breytingar á reglugerðum vegna einföldunar eftirlits“, rennur út 17. ágúst. Sveitarfélög og aðrir hagaðilar eru hvattir til að kynna sér málið og senda inn athugasemdir. Það er mun auðveldara að lagfæra reglugerðardrög núna en að uppgötva eftir áramót að ábyrgðin hafi færst en nauðsynlegar heimildir og þekking ekki fylgt með. Höfundur er heilbrigðisfulltrúi og framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og ritari Samtaka heilbrigðiseftirlita - SHÍ https://shi.is/ Málið og reglugerðardrögin eru í Samráðsgátt stjórnvalda (https://island.is/samradsgatt/mal/4260). Úrskurðurinn um númerslausu bifreiðina styður sérstaklega umfjöllunina um þörf á skýrum vald- og framsalsheimildum. [Úrskurður ÚUA nr. 26/2014](https://uua.is/urleits/26-2014-numerslaus-bifreid-2/). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðiseftirlit Heilbrigðismál Umhverfismál Orkumál Loftslagsmál Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar