Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. ágúst 2026 08:02 Enginn fékk fleiri stig í Fantasy-leiknum en Daninn Erik Ibsen sem var að prófa að spila leikinn í fyrsta sinn. Systir hans átti mikinn þátt í því að hann byrjaði. @premierleague, @erik_ibsen Daninn Erik Ibsen var hlutskarpastur í Fantasy-leik ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á síðustu leiktíð en hann fór yfir leið sína að sigrinum í stuttu innslagi á miðlum ensku úrvalsdeildarinnar.
Erik Ibsen, sem býr í Óðinsvéum á Fjóni, er annar Norðurlandabúinn af síðustu þremur til að vinna Fantasy-leikinn því Norðmaðuirnn Jonas and Labakk vann hann tímabilið 2023-24 en tímabilið 2024-25 fór titilinn til Króatíu. „Ég spilaði Fantasy Premier League í fyrsta sinn á síðasta tímabili og af þrettán milljónum manna sem tóku þátt þá vann ég,“ sagði Erik Ibsen í byrjun myndbandsins. „Ég byrjaði að spila Fantasy Premier League fyrir systur mína sem þurfti hjálp við að skapa sína eigin deild. Svo fór ég að hjálpa henni og hún sagðist vilja keppa við mig svo ég bjó til mitt eigið lið. Það var smá systkinarígur á milli okkar svo mér fannst þetta fullkominn tími til að byrja,“ sagði Ibsen en það má horfa á viðtalið við hann hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by Premier League (@premierleague) „Systir mín sagði eitthvað á þessa leið: „Já, mér gengur bara vel, ég er í fjórða sæti í deildinni, ég er í svona 1,2 milljónasta sæti í heiminum.“ Og ég sagði: „Já, ég er í 500. sæti,“ sagði ég við hana. Og ég man eftir svipnum á henni þegar ég sagði henni það, hún sagði: „Ertu að grínast? Þetta er brandari.“ Ég var algjörlega húkkt,“ sagði Ibsen. Vildi frekar vinna en ná prófunum „Bekkjarfélagar mínir spurðu mig hvort ég myndi velja að ná prófunum mínum í skólanum eða að vinna FPL. Hvort ég vildi frekar? Ég sagði þeim að ég myndi velja að vinna FPL,“ sagði Ibsen og glotti en hann á þar við skammstöfunina Fantasy Premier League-leikinn. Hann er í læknanámi. „Fjölskyldan mín, vinir mínir, kærastan mín, þau fylgdust öll með því sem var að gerast. Það jók á pressuna á annan hátt, en það gerði þetta líka miklu skemmtilegra því mér fannst allir standa með mér í þessu,“ sagði Ibsen. Við öskruðum öll saman í símann „Svo þetta var mjög skemmtilegt. Frændi minn kom frá Kaupmannahöfn til að horfa á lokadaginn með mér hér í Óðinsvéum. Og ég man að við hringdum í fjölskylduna mína, foreldra mína. Þau búa ekki í Evrópu, svo ég hringdi í þau í FaceTime og þau höfðu vaknað klukkan fimm um morguninn til að horfa á lokaleikina til að sjá hvernig færi. Þau voru þarna og við öskruðum öll saman í símann. Svo þetta var sérstök upplifun,“ sagði Ibsen. „Síðasta tímabil snerist allt um að keppa við systur mína og hafa bara gaman. Ég held að þetta tímabil verði nákvæmlega eins og af nákvæmlega sömu ástæðu. Ég hef eignast svo marga vini og kynnst samfélaginu í gegnum þetta ferli,“ sagði Ibsen. Enginn hefur unnið tvö ár í röð „Það er líka hvatning fyrir mig til að gera þetta aftur. Sumir hafa sagt að ég gæti orðið sá fyrsti til að vinna tvisvar í röð eða vinna í annað sinn. Í mínum huga held ég að það sé nógu súrrealískt að hafa unnið einu sinni en það eru enn 38 leikvikur eftir, svo allt getur gerst,“ sagði Ibsen að lokum.
Enski boltinn Fantasýn Mest lesið „Stoltur af henni og hún á þetta mjög mikið skilið“ Sport Úrvalsdeildarfélög undirbúa málsókn gegn City Sport Haaland mætir ekki í viðtal eftir tíðindi dagsins Sport „Getum ekki mætt í neinn leik og leyft okkur að slaka á“ Sport „Höfum talað digurbarkalega um það“ Fótbolti Internetið gerir grín að Caleb Williams Sport Celtic og Rangers áfrýja Sport Nafnarnir í KA sáu um Val Sport „Sagði bara við hann, ég skal taka þetta“ Sport Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Enski boltinn Fleiri fréttir Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Sjá meira