Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. ágúst 2026 14:00 Brian Madjo fagnar marki sínu fyrir Aston VIlla gegn Paris Saint-Germain í Ofurbikar Evrópu í gær. getty/Aston Villa Eftir langa bið og talsverða óvissu lék hinn sautján ára Brian Madjo sinn fyrsta keppnisleik fyrir Aston Villa í gær. Hann skoraði þá gegn Evrópumeisturum Paris Saint-Germain og var líkt við sjálfan Erling Haaland eftir leik.
Í janúar gekk Villa frá kaupunum á Madjo frá Metz í Frakklandi. Hann þreytti hins vegar frumraun sína með Villa í keppnisleik ekki fyrr en í gær, 212 dögum eftir að félagið keypti hann. Villa fékk nefnilega ekki leikheimild fyrir Madjo fyrr en eftir úrskurð Alþjóða íþróttadómstólsins (CAS). Leikmenn yngri en átján ára geta ekki fengið félagaskipti milli landa en Villa taldi að Madjo væri undanþeginn þeirri reglu þar sem hann er fæddur í London. Varnarmenn PSG þurftu að hafa mikið fyrir Madjo.getty/Giuseppe Maffia Fjölskylda hans fluttist til Lúxemborgar þegar hann var ungur og hann lék fyrir yngri landslið þjóðarinnar. Madjo hefur hins vegar ákveðið að spila fyrir hönd Englands og á að baki níu leiki með U-17 ára landsliðinu. Úrskurður CAS kom í síðustu viku og hann var Villa í hag. Unai Emery, knattspyrnustjóri Evrópudeildarmeistaranna, gat því loks teflt Madjo fram í leiknum gegn PSG um Ofurbikar Evrópu í Salzburg í gær. Og strákurinn sýndi hvers hann er megnugur gegn Evrópumeisturum síðustu tveggja ára. Madjo var í byrjunarliði Villa og lét til sín taka í leiknum í gær. Kvicha Kvaratskhelia kom PSG yfir eftir tuttugu mínútur en á lokamínútu fyrri hálfleiks jafnaði Madjo með skoti á lofti eftir fyrirgjöf fyrirliðans Johns McGinn. Á 61. mínútu skoraði Désiré Doué svo sigurmark PSG. Madjo var hlaðinn lofi eftir leikinn, meðal annars af spænska íþróttafréttamanninum Guillem Balague. „Madjo er tuttugu marka maður á tímabili núna. Ég sver að ég skrifaði það fyrir fyrsta keppnisleikinn þar sem hann skoraði fyrsta markið sitt,“ skrifaði Balague. „Þvílíkur leikmaður! Hreyfingarnar, hraðinn og tengispilið. Hann er Haaland í mótun! (Ég skýt næstu manneskju sem ber hann saman við Lukaku!)“ Madjo is a 20 goals a season striker starting now I swear I wrote that before he grabs his 1st on a official game 😂What a player! The movement, the pace, the link up play He is a Haaland in the making! (I'll shoot the next person that compares him to Lukaku!)— Guillem Balague (@GuillemBalague) August 12, 2026 Madjo er yngsti leikmaðurinn sem skorar í Ofurbikar Evrópu, aðeins sautján ára og 212 daga gamall. Patrick Kluivert átti metið en hann var nítján ára og 220 daga gamall þegar hann skoraði fyrir Ajax gegn Real Zaragoza í febrúar 1996. Madjo og félagar í Villa hefja leik í ensku úrvalsdeildinni gegn Brighton á útivelli sunnudaginn 23. ágúst. Villa endaði í 4. sæti deildarinnar á síðasta tímabili og vann sér þar með þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu í vetur.
Enski boltinn Aston Villa FC Tengdar fréttir Paris Saint-Germain vann Ofurbikarinn annað árið í röð Meistaradeildarmeistarar Paris Saint-Germain unnu Ofurbikar Evrópu annað árið í röð í kvöld eftir 2-1 sigur á Evrópudeildarmeisturum Aston Villa í úrslitaleik í Salzburg í Austurríki. 12. ágúst 2026 20:59 Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Fleiri fréttir Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Sjá meira
Paris Saint-Germain vann Ofurbikarinn annað árið í röð Meistaradeildarmeistarar Paris Saint-Germain unnu Ofurbikar Evrópu annað árið í röð í kvöld eftir 2-1 sigur á Evrópudeildarmeisturum Aston Villa í úrslitaleik í Salzburg í Austurríki. 12. ágúst 2026 20:59