Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Jón Þór Stefánsson skrifar 12. ágúst 2026 15:45 Guðni Ágústsson rifjar upp síðasta almyrkva á Íslandi. Vísir/Vilhelm Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra Framsóknarflokksins, var lokaður inni í herbergi síðast þegar almyrkvi var á Íslandi fyrir rúmum sjötíu árum, en þá mun hann hafa verið fimm ára gamall. „
Hugsið ykkur, 1954, þá var sólmyrkvi, almyrkvi. Ég man þennan morgun enn. Við vorum fædd ein tíu systkinin. Ég man að pabbi sagði: Inga mín, nú lokar þú drengina inni, því þeir geta orðið blindir ef þeir horfa í sólina. Við vorum lokaðir inni“ sagði Guðni í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Systkini hans áttu reyndar eftir að verða sextán talsins. Guðni fæddist og ólst upp á bænum Brúnastöðum í Flóanum. Foreldrar hans voru Ingveldur Ástgeirsdóttir og Ágúst Þorvaldsson, sem einnig var þingmaður Framsóknarflokksins en það var eftir umræddan sólmyrkva 1954. Á þessum tíma voru sólmyrkvagleraugun ekki komin til sögunnar, að minnsta kosti ekki fjöldaframleidd eða útbreidd hér á Íslandi. „Það voru engin gleraugu til. Það var sagt í útvarpinu að það ætti að loka börn inni svo þau myndu ekki horfa í sólina.“ Fólk var hrætt við þetta? „Já, já.“ Aðspurður um hvort hann ætli að gera eitthvað í tilefni dagsins segir Guðni að hann hyggist ætla að dvelja inni. „Það verður skýjað. Ég hefði viljað vera fyrir ofan skýin. En ég gleymi þessu aldrei, að hafa verið lokaður inni 1954.“ Var þetta í eina skiptið sem þú varst lokaður inni? „Nei,“ segir Guðni og flissar. „Það kom oftar fyrir.“ Gefur út Njálu Ástæðan fyrir heimsókn Guðna í Bítið var þó ekki þessi merkilega frásögn, heldur önnur merkileg frásögn, sem er þó öllu lengri, Brennu-Njáls Saga. Að sögn Guðna er hún merkilegust Íslendinga sagnanna. Hann, sem og Njálufélagið, standa nú í endurútgáfu á Brennu-Njáls Sögu. Fyrirhugað er að þessi nýja útgáfa komi út í haust.
Einu sinni var... Almyrkvi 12. ágúst 2026 Bókmenntir Bítið Tengdar fréttir Ólína löðrunguð þrisvar á sviðinu Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, er nú á fullu við að undirbúa sérstaka Njálusýningu og hann kann að lýsa því en auk hans verða þau Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir rektor og Gissur Páll Gissurarson tenór sem flytja textann. 26. mars 2026 07:01 Mest lesið Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Lífið Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Lífið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Lífið Hvað veistu um… Djúpavog? Lífið Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Menning Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Lífið Ein heitasta leikkona landsins á lausu Lífið Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Lífið Fleiri fréttir Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Sjá meira
Ólína löðrunguð þrisvar á sviðinu Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, er nú á fullu við að undirbúa sérstaka Njálusýningu og hann kann að lýsa því en auk hans verða þau Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir rektor og Gissur Páll Gissurarson tenór sem flytja textann. 26. mars 2026 07:01