Kevin Hart kom honum í gegnum erfiða tíma í steininum Valur Páll Eiríksson skrifar 12. ágúst 2026 11:00 Rashee Rice hefur verið töluvert til vandræða undanfarin misseri. Cooper Neill/Getty Images Rashee Rice, útherji Kansas City Chiefs í NFL-deildinni, segist hafa lært mikið af mánaðardvöl sinni í fangelsi fyrr í ár. Það hafi reynst raunveruleikaskoðun.
Minna en tveir mánuðir eru síðan Rice var sleppt lausum úr fangelsi í Dallas. Hann fór þangað inn vegna brots á skilorði sem hann var í vegna hluts í alvarlegu bílslysi fyrir tveimur árum þar sem fjöldi fólks meiddist. „Þetta var lærdómsrík reynsla og raunveruleikaskoðun,“ sagði Rice á þriðjudaginn í fyrsta viðtali sínu síðan á síðustu leiktíð. „Ekki einblína á fortíðina. Ég einbeiti mér að því sem er að gerast núna. Mér gengur [vel] andlega.“ „Þetta var erfitt andlega. Þau gáfu mér leiðir til að eiga samskipti við liðsfélaga mína og þrekþjálfara minn. Fyrir utan erfiðleikana þarna inni hélt ég hugsunum mínum í lagi með því að horfa á þætti og eins mikið [af grínistanum] Kevin Hart og ég gat til að hlæja.“ Ríkissaksóknari Texas fyrirskipaði hinum 26 ára gamla Rice þann 19. maí að fara í fangelsi strax eftir að hann mældist með tetrahýdrókannabínóli (THC), í blóðinu. Það er virka efnið í maríjúana. Á meðan hann afplánaði dóminn fékk Rice að gangast undir aðgerð á hægra hné á Parkland-sjúkrahúsinu, en dómari veitti honum það leyfi. Viku áður en hann fór í fangelsið gekkst Rice undir aðgerð til að hreinsa upp hægra hnéð, sem hafði valdið bólgu. Rice viðurkenndi að bólgan í hné hans hefði haft áhrif á frammistöðu hans á síðasta tímabili. Eftir að hafa afplánað sex leikja bann í upphafi síðasta tímabils – fyrir að brjóta gegn reglum deildarinnar vegna þátttöku sinnar í bílslysinu – spilaði Rice átta leiki og endaði með 571 móttökustikur og sex snertimörk. Rice er á fullu á undirbúningstímabili með Kansas City Chiefs sem spila fyrsta æfingaleik sinn um helgina gegn Los Angeles Rams. Fyrsti leikur liðsins í NFL-deildinni er gegn Denver Broncos á Arrowhead-vellinum þann 14. september.
NFL Mest lesið Selfyssingar syrgja Sport Braut kynferðislega á Andy Carroll Enski boltinn Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Yoro ekki til Íslands Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Fótbolti Fleiri fréttir „Meira en tvö stig undir“ Braut kynferðislega á Andy Carroll Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Ljót meiðsli og ælt á völlinn Yoro ekki til Íslands „Væri fínt ef þetta væru sex mánuðir“ Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur Grip ársins? „Þetta er út í hött“ George Gillett látinn Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Leikmenn Heimis funda á morgun fyrir leik gegn Ísrael Dauði varnarmannsins Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Selfyssingar syrgja Þjóðadeildin fer af stað í beinni Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Eriksen yfirgefur Wolfsburg Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar Garðar Ingi með þrjú mörk og Ómar og Gísli flugi áfram „Þær héldu að þær myndu labba yfir okkur“ „Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta“ Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt „Við erum ekki að ýta undir slagsmál en við erum að ýta undir ástríðu“ Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Rjúkandi blys á vellinum þegar City skoraði en mótbárur Glódísar dugðu ekki Sjá meira