Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. ágúst 2026 19:54 Berglind Katla Hlynsdóttir skoraði yfir þrjátíu stig í öllum leikjum íslenska liðsins á mótinu. FIBA Basketball Íslenska sextán ára landslið kvenna í körfubolta komst ekki upp í A-deild Evrópukeppninnar en liðið tapaði með þremur stigum á móti heimastúlkum í Grikklandi, 75-72, í úrslitaleik í kvöld.
Íslensku stelpurnar höfðu unnið alla leiki sína í keppninni en réðu ekki við sterkt grískt lið í úrslitaleiknum. Íslenska liðið sýndi samt mikinn karakter með því að vera næstum því búið að vinna upp 24 stiga forskot Grikkja á lokamínútunum. Stjörnukonan Berglind Katla Hlynsdóttir hefur verið stórkostleg á þessu móti og átti enn einn stórleikinn í kvöld. Það var bara ekki nóg. Berglind Katla Hlynsdóttir endaði leikinn með 34 stig, 9 fráköst, 2 stoðsendingar, 2 varin skot og 26 framlagsstig. Hún skoraði 13 af 19 stigum Íslands í fyrsta leikhlutanum og var komin með 21 stig í hálfleik. Grikkland var bara tveimur stigum yfir, 21-19, eftir fyrsta leikhlutann en var komið með átta stiga forskot í hálfleik, 45-37. Gríska liðið náði mest 24 stiga forskoti í seinni hálfleiknum en íslensku stelpurnar gáfust ekki upp og minnkuðu muninn aftur niður í tvö stig, 72-70, þegar innan við tvær mínútur voru eftir af leiknum. Berglind gat þá jafnað metin með því að setja niður tvö vítaskot en klikkaði á báðum og gríska liðið slapp með skrekkinn. Stjörnukonan Eva Ingibjörg Óladóttir var með 18 stig, 6 fráköst og 2 stolna bolta en Valsstelpan Rún Sveinbjarnardóttir var með 11 stig, 7 fráköst og 5 stolna bolta. Keflvíkingurinn Oddný Hulda Einarsdóttir skoraði 5 stig og tók 4 fráköst og kollegi hennar úr Keflavík, Björk Karlsdóttir, skoraði ekki en var með 9 fráköst, 4 stoðsendingar og 3 stolna bolta.
Landslið kvenna í körfubolta Mest lesið „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Handbolti Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ Fótbolti City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enski boltinn Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Einkunnir Íslands: Lúxus frá Andra Lucasi í Lúxemborg Fótbolti Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Handbolti Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Fleiri fréttir „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Sjá meira