,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Elísabet Inga Sigurðardóttir og Áróra L Davíðsdóttir skrifa 10. ágúst 2026 21:09 Guðrún Hafsteindóttir kallar eftir skýrari svörum frá Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra. SÝN Formaður Sjálfstæðisflokksins sakar forsætisráðherra um að vera ósamkvæm sjálfri sér í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Segir hún fyrirhugaða hlustunarfundi forsætisráðherrans um landið ekkert annað en kosningaherferð.
Nú þegar styttist í þjóðaratkvæðagreiðsluna er deilan milli já og nei sinna farin að harðna. Myndbrot af Kristrúnu Frostadóttur frá árinu 2024, í aðdraganda síðustu þingkosninga, hefur verið mikið í dreifingu þar sem hún sagði að afgerandi stuðningur þyrfti að vera fyrir Evrópuvegferð. „Þú verður að vera með ofboðslega sterkt umboð til verka og þú getur ekki verið með einn til tvo stjórnmálaflokka sem ætla að leiða það verkefni,“ segir Kristrún í hlaðvarpinu Chess after Dark árið 2024. „Ég vil ekki standa frammi fyrir því að vera með klofna þjóð á næsta kjörtímabili. Hvað ef við fáum þá niðurstöðu upp úr kassanum, 52-48 já? Hvað á maður, ef maður er í forystu fyrir ríkisstjórn, að gera þegar þú færð svoleiðis niðurstöðu? Það er heldur ekki ekki góð niðurstaða. En það er munur á 52-48 Stefán. Það þarf að vera vel yfirgnæfandi stuðningur fyrir svona vegferð,“ segir Kristrún í Spursmálum árið 2024. Það vakti því athygli margra þegar hún sagði í viðtali í Bítinu á Bylgjunni að 51 prósent niðurstaða væri nóg. Hefur hún sagt í viðtölum að staða heimsmála hafi einfaldlega breyst eftir að hún tók við völdum. „Ætlar hún að mæta í félagsheimilin og sitja og segja ekki orð?“ Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins gefur lítið fyrir það og sakar forsætisráðherra um að vera ósamkvæm sjálfri sér. „Hún segir eitt annan daginn og eitthvað allt annað hinn næsta og ég veit ekki hvað hún ætlar að segja í næstu viku. Ég geri bara kröfu til leiðtoga þjóðarinnar að þeir séu skýrir, segi rétt frá og segi okkur hvert þeir ætla að leiða þjóðina. Ég veit ekki hvert hún er að fara,“ segir Guðrún. Guðrún segir utanríkisráðherra hafa verið alveg skýran í sínum málflutningi og því beri hún virðingu fyrir. Þá spyrji hún sig hvar formaður Flokks fólksins sé. Guðrún kallar eftir skýrari svörum frá forsætisráðherra. „Hún sagði líka í júní, að hún ætlaði ekki að verða einhver talsmaður „já“ í þessari baráttu fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu heldur vildi hún bara að þjóðin myndi kynna sér málið og þjóðin ætti að fá frið til þess. Í gær birti Kristrún dagskrá hringferðar um landið þar sem hún mun hitta landsmenn á því sem hún kallar hlustunarfundum. Sagði hún í samtali við fréttastofu að tilgangurinn væri að hlusta á væntingar, vonir og áhyggjur fólks vegna Evrópuvegferðarinnar. „Ég hef náttúrulega aldrei upplifað svona bull. Ætlar hún að sitja og þegja? Ætlar hún að mæta í félagsheimilin og sitja og segja ekki orð? Þetta er auðvitað rugl og einhver auglýsingamennska til að breiða yfir það að hún sé ekki komin í kosningaherferð. Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá,“ segir Guðrún um væntanlega hringferð Kristrúnar um landið.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Sjálfstæðisflokkurinn Viðreisn Samfylkingin Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Erlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Innlent Dagný Ósk látin Innlent Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Erlent Bannaði Trump að banna fjölmiðla Erlent „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Innlent „Mjög stór og mikilvæg niðurstaða fyrir okkur“ Innlent Barnið ekki í viðeigandi öryggisbúnaði Innlent Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Óseyri Innlent Fleiri fréttir Færri þunganir í áhættuhópi með nýrri tegund fósturskimunar Barnið ekki í viðeigandi öryggisbúnaði „Mjög stór og mikilvæg niðurstaða fyrir okkur“ Segja upp tveimur sérfræðingum Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Óseyri Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Hollendingar hætta við Eurovision-sniðgöngu Þúsundir barna bíða mánuðum saman „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Hjólreiðamaður slasaðist en reiðhjólið í lagi Efnaleki á Óseyri og fólk beðið um að halda sig fjarri Quang Lé frjáls sinna ferða „Grafalvarlegt ástand sem skapast“ Íslenskir stjörnukokkar meðal kokka sem mótmæla fiski úr sjókvíaeldi Bjartsýnn á að lausn náist innan fjögurra vikna Dagný Ósk látin Skora á atvinnurekendur og minna á rétt launafólks Kom til landsins með kafarabúninga og neðansjávarvespur Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður Bein útsending: Heimkoman ekki eins auðveld fyrir alla Drengurinn er fundinn Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta Skammlíft verkfall og umfangsmikið fíkniefnamál Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Flugvirkjar aflýsa verkfalli Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Sjá meira