Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 8. ágúst 2026 16:03 Um sjö hundruð stelpur keppa á N1 mótinu á Akureyri um helgina. Myndin er úr safni. vísir/vilhelm N1 mót stúlkna fer fram á Akureyri í annað sinn um helgina en sambærilegt mót fyrir stráka hefur farið fram síðustu fjörutíu ár. Framkvæmdastjóri KA segir mótið komið til að vera og vonast til að stúlkurnar skapi minningar fyrir lífstíð.
Um sjö hundruð stelpur á aldrinum níu til tíu ára eru mættar til leiks í rigningunni á Akureyri en 108 lið taka þátt í mótinu í ár. „Þetta er heljarinnar mót sem hófst klukkan tvö í gær og spilast fram á seinnipart sunnudags. Fullt af stelpum í bænum að spila fótbolta og hafa gaman,“ sagði Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA í hádegisfréttum Bylgjunnar. Snýst um meira en fótbolta Hlýtt er í bænum og engin teljandi vandræði sem fylgi úrkomunni. Þetta er í annað sinn sem N1 mót stúlkna er haldið en sambærilegt mót fyrir stráka hefur farið fram síðustu fjörutíu ár. „Þetta kemur til þar sem að N1 vildi í raun fara á laggirnar með mót fyrir stelpurnar líka og gera sambærilega upplifun fyrir stelpur og hefur verið fyrir stráka undanfarin ár sem er virkilega flott og við stolt af samstarfinu því þeir gera allt eins og hefur verið á strákamótinu síðustu ár. Það eru flottir tónleikar og öllum boðið í bíó og sund og svo framvegis þannig þetta er meiri upplifun heldur en bara að mæta og spila fótbolta. Við erum að vona að stelpurnar hér njóti þess að vera saman og kynnist stelpum í öðrum liðum og skapi minningar fyrir lífstíð.“ Er þetta komið til að vera? „Já ég held það. Miðað við móttökurnar síðustu tvö ár þá held ég að þetta sé komið til að vera og verður enn öflugra þegar það er komin reynsla á þetta í tvö til þrjú ár í viðbót.“
Fótbolti Akureyri Íþróttir barna Jafnréttismál Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Innlent Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Erlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fleiri fréttir Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Sjá meira