Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Agnar Már Másson skrifar 6. ágúst 2026 18:11 Pétur G. Markan er bæjarstjóri Grindavíkur. Grindavíkurbær Pétur Markan, bæjarstjóri Grindavíkur, segist ánægður með endurskoðun á gerð áhættumats fyrir þéttbýli í Grindavík. Nýja nálgunin felur í sér að áhættumatið byggi ekki aðeins á vísindalegu mati, heldur taki einnig mið af reynslu og gildismati þeirra sem búa og starfa við langvarandi óvissu.
Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að með þátttöku Grindvíkinga, sérfræðinga og fræðimanna verði skilgreindir mælikvarðar á áhættu og skýr þolmörk fyrir ýmsa þætti – svo sem búsetu, tímabundna viðveru, þjónustu sveitarfélagsins og starfsemi fyrirtækja og innviða. Unnið hefur verið að endurskoðun áhættumats í samráði við Grindvíkinga, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, lögreglustjórann á Suðurnesjum, Veðurstofuna og fleiri. Bæjarstjórinn er vongóður. „Þetta hefur þau áhrif að nýtt áhættumat gefur okkur vonir og væntingar – þó svo að það hafi ekki litið dagsins ljós – til að geta tekið ákvarðanir um skólahald, búsetu og taka þessi markvissu skref fram á við sem við þurfum að gera,“ segir Pétur Markan bæjarstjóri Grindavíkur. Ráðuneytið segir þessa nýju nálgun gera áhættumatið gagnsærra og hagnýtara, en unnt verði að uppfæra það eftir því sem aðstæður breytast og nýta það með markvissari hætti við ákvarðanir um endurreisn Grindavíkur. „Við erum vongóð um framhaldið og við lítum svo á að við séum að vinna að því að geta tekið örugg og markviss skref fram á við,“ bætir Pétur við. Að endurskoðuninni koma jafnframt verkfræðistofan Verkís og Alþjóðabankinn. Fyrr í sumar voru haldnar vinnustofur þar sem ofangreindir aðilar tóku þátt og nú eru að störfum hópar sem hafa hafið innleiðingu.
Grindavík Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Eldgos á Reykjanesskaga Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira