Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Tómas Arnar Þorláksson skrifar 6. ágúst 2026 12:08 Maðurinn lést í heimahúsi í Kópavogi. vísir/vilhelm Maðurinn sem var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald í gær í tengslum við mannslát í Kópavogi er grunaður um að hafa orðið föður sínum að bana í heimahúsi í Kópavogi þarsíðustu helgi. Maðurinn sem um ræður hefur glímt við andleg veikindi til lengri tíma.
Karlmaður á sjötugsaldri fannst látinn í Salahverfinu í Kópavogi sunnudaginn 26. júlí. Lögreglu grunaði fljótlega í kjölfarið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti og var sonur mannsins á fimmtugsaldri handtekinn þriðjudaginn 28. júlí og úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald daginn eftir í tengslum við málið. Í gær var maðurinn úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna grunaður um að hafa orðið föður sínum að bana. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur maðurinn glímt við andleg veikindi til lengri tíma en ekki liggur fyrir hvort hann hafi brotaferil að baki. Sterkur grunur liggur fyrir í málinu. Agnes Eide Kristjánsdóttir, yfirlögregluþjónn rannsóknarsviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir í samtali við fréttastofu að lögreglan sé komin með skýra mynd af málavöxtum og að um mannlegan harmleik innan fjölskyldu sé að ræða. Samkvæmt heimildum fréttastofu fannst vopn ekki á vettvangi og er morðvopn ekki meðal rannsóknargagna. Sá grunaði hefur stöðu sakbornings og hefur verið á stofnun hér á landi vegna andlegra veikinda. Um viðkvæmt mál sé að ræða og verst lögregla frekari fregna af málinu.
Lögreglumál Kópavogur Grunaður um að bana föður sínum í Kópavogi Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Sjá meira