„Við erum svolítið strand“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 4. ágúst 2026 14:34 Lögreglan rannsakar innbrotið. Vísir/Lýður Valberg Lítið er að frétta af rannsókn lögreglu á innbroti í minkabúi í Mosfellsdal þar sem fjölda minka var sleppt úr búrunum sínum. Enn á eftir að fara yfir töluvert af myndefninu. „
Við erum svolítið strand,“ segir Hildur Rún Björnsdóttir, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu. Fyrir tæpri viku var brotist inn í Dalsbú í Mosfellsbæ, síðasta minkabú landsins, öll búrin opnuð og minkunum sleppt út. Á milli tíu og tólf þúsund minkar voru í búinu en enn er á reiki hversu margir minkar sluppu í raun. Engir minkar hafa ratað í gildrur í nágrenni við Dalsbú síðastliðna þrjá sólarhringa. Lögreglan óskaði eftir því að fólk í nágrenninu myndi senda þeim myndefni og hafa þó nokkrir svarað kallinu. „Við fengum alveg slatta af myndefni en við höfum ekki haft tök á því að fara í gegnum það allt saman. Þetta er þannig myndefni sem rúllar allan sólarhringinn, það þarf að liggja yfir því,“ segir Hildur Rún. Stefnan er að klára að fara yfir myndefnið í vikunni. Hún segist geta ímyndað sér að það hafi verið fleiri en einn að verki en svo sem stendur liggur enginn undir grun. Rauðtússuð talnaruna Fyrr á árinu var brotist inn bæði í Reykjabú og hjá Stjörnugrís og skemmdarverk framin. Í báðum tilfellunum voru skilin eftir sams konar bréf. Ásgeir Pétursson, eigandi minkabúsins, sagði í viðtali um helgina að hann hefði afhent lögreglunni rauðtússaðan miða sem fannst á vettvangi. Hann réði ekkert í tölurnar sem krotaðar voru aftan á miðann. Hildur segir miðann sem Ásgeir afhenti lögreglu ekki eins og bréfin sem skilin voru eftir í hinum innbrotunum. „Þetta er miði sem er með einhverri talnarunu og þarf ekkert endilega að tengjast þessu máli. Hann kemur til okkar einhverjum dögum seinna,“ segir hún. Hildur biðlar til almennings að afhenda lögreglunni myndefni, sama þótt það teljist ómerkilegt.
Loðdýrarækt Mosfellsbær Minkum sleppt í Mosfellsdal Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Sjá meira