„Sigurinn var innan seilingar“ Hjörvar Ólafsson skrifar 3. ágúst 2026 22:13 Chris Brazell á hliðarlínunni í leiknum í kvöld. Vísir/Anton Brink Chris Brazell var fimm mínútum frá því að landa fyrsta sigri sínum við stjórnvölinn hjá Val í Bestu-deild karla í fótbolta þegar liðið atti kappi við Stjörnuna í kvöld. „
Það eru gríðarleg vonbrigði að ná ekki að sigla sigrinum í höfn eftir að hafa verið 2-1 yfir þegar fimm mínútur voru eftir. Þegar lið hafa gengið í gegnum nokkur töp í röð er alltaf erfiðara að komast yfir hjallann að halda forystu og ná í sigurinn sem getur svo veitt liðum sjálfstraust,“ sagði Chris Brazell, þjálfari Vals, vonsvikinn. „Bæði lið voru að koma úr erfiðum leikjum í Evrópukeppni þar sem við fórum í langt ferðalag og þeir spiluðu í 120 mínútur. Það sást aðeins á leikmönnum liðanna undir lok leiksins. Leikmenn mínir gáfu allt í leikinn og spiluðu á köflum vel en því miður dugði það ekki til,“ sagði Chris enn fremur. „Við hefðum klárlega getað gert betur í mörkunum sem við fáum á okkur undir lokin en eins og ég sagði áðan gerðu mínir menn allt sem í þeirra valdi stóð til þess að sigla þessum sigri heim. Við þurfum bara að læra af þessu, skilja við þennan leik og halda áfram,“ sagði hann. „Það er spennandi verkefni fram undan þar sem við mætum toppliði frá Danmörku. Það verður gaman að máta okkur við þá og sjá hvar við stöndum í samanburði við eitt af bestu liðum Danmerkur. Við hlökkum til að takast á við þá áskorun,“ sagði Chris en Valur mætir Nordsjælland í fyrri leik liðanna í þriðju umferð í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu á fimmtudaginn næsta.
Íslenski boltinn Besta deild karla Valur Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira