Enn skorar Emelía Valur Páll Eiríksson skrifar 1. ágúst 2026 15:51 Emelía er búin að skora tvö í fyrstu tveimur. Mynd/HB Köge Emelía Óskarsdóttir byrjar tímabilið vel með HB Köge í Danmörku. Kristianstad vann góðan sigur í Svíþjóð.
Emelía spilaði síðari hálfleikinn í öruggum 4-0 sigri Köge á ASA frá Árósum í annarri umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Hún skoraði fjórða markið í uppbótartíma og er því komin með tvö mörk í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins. Köge er þá jafnframt með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leikina en liðið er ríkjandi danskur meistari. Eftir frábæra byrjun á tímabilinu hefur aðeins hallað undan fæti hjá Íslendingaliði Kristianstad sem stýrt er af Nik Chamberlain, fyrrverandi þjálfara Kristianstad. Liðið gerði hins vegar vel í dag gegn AIK sem er sæti ofar en Kristianstad í töflunni. Elísa Sigurjónsdóttir og Alexandra Jóhannsdóttir spiluðu báðar allan leikinn á miðju Kristianstad og sú síðarnefnda lagði upp mark og fékk einnig gult spjald. Framherjinn Elin Hansson var hetja Kristianstad í dag en hún skoraði tvö marka liðsins og lagði upp það þriðja á Hönnu Ekengren. Linda Líf Boama kom inn sem varamaður og spilaði síðasta hálftíma leiksins. Kristianstad er eftir sigurinn áfram í fimmta sæti deildarinnar með 18 stig, þremur á eftir AIK sem er sæti ofar. Djurgården tapaði þá 2-1 fyrir Brommapojkarna. Freyja Stefánsdóttir skoraði eina mark Djurgården í leiknum, og það í sínum fyrsta leik eftir skipti frá Víkingi, en María Catharina Ólafsdóttir Gros var einnig í byrjunarliði liðsins. Djurgården er í fallsæti með átta stig eftir tólf umferðir. Norrköping, lið Sigdísar Evu Bárðardóttur, vann 4-0 sigur á botnliði Uppsala. Norrköping er þar af leiðandi að vinna annan leik sinn í vetur og situr í 10. sæti af 14 liðum. Sigdís sat allan leikinn á varamannabekknum.
Sænski boltinn Danski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino Fótbolti Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira