Lærisveinar Sigga Ragga áfram eftir dramatíska framlengingu og vítaspyrnukeppni Andri Broddason skrifar 30. júlí 2026 21:42 Siggi Raggi vann ótrúlegan sigur í vítaspyrnukeppni gegn slóvenska liðinu Koper. Visir/ Tjörvi Færeyska Íslendingaliðið NSÍ Runavík náði að tryggja sig áfram í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu eftir vítaspyrnukeppni. Liðið mætti slóvenska liðinu Koper.
Fyrri leikur liðanna var spilaður í Færeyjum þar sem Koper vann öruggan 2-0 sigur. Þjálfari Runavíkur, Sigurður Ragnar Eyjólfsson, mætti staðráðinn í að bæta upp fyrir tapið í leiknum í kvöld. Leikurinn byrjaði ekki alveg eftir plani hjá Sigga þar sem Koper fékk víti eftir aðeins 26 mínútna leik. Leo Rimac fór á punktinn en náði ekki að nýta vítaspyrnuna sína. Það átti eftir að koma í bakið á Slóvenunum þar sem Beinir Molsoe skoraði fyrir Runavík tíu mínútum síðar. Í seinni hálfleik fékk Marius Kryger Lindh heiðurinn af því að skora annað mark Runavíkur og viðureignin var orðin jöfn. Þetta var síðasta mark venjulegs leiktíma og ljóst að það þurfti að framlengja leikinn. Í framlengingunni fékk Koper aðra vítaspyrnu og var búið að taka Rimac af velli þannig að Bassirou N’diaye fór á punktinn. Hann gerði betur en samherji hans á punktinum og náði að skora og Koper þá í farþegasætinu. Siggi Raggi er seint þekktur fyrir að gefast upp og eftir ótrúlegar lokamínútur náði Runavík að jafna viðureignina með marki frá Michal Przybylski. Viðureignin var því jöfn og ljóst að úrslitin leysast í vítaspyrnukeppni. Mikil spenna var í vítaspyrnukeppni en Runavík náði að tryggja sig áfram með sigri í bráðabana vítaspyrnukepnninnar. Alex Freyr Elísson skoraði mikilvæga vítaspyrnu fyrir Runavík. Siggi Raggi náði því á ótrúlegan hátt að halda Evrópuævintýri sínu áfram.
Sambandsdeild Evrópu Færeyski boltinn Íslendingar erlendis Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjá meira