Mosfellsdalur minnti á vígvöll Sigurgeir Þorkelsson skrifar 30. júlí 2026 00:02 Innbrot í minkabú hefur líklega valdið dauða þúsunda minka. Bæjarstjóri Mosfellsbæjar hvetur þau sem sjá til minka til að láta vita í síma 525-6700. Innsent „Þetta líktist næstum því vígvelli,“ sagði Tómas Arnar Þorláksson, fréttamaður sem fylgt hefur eftir atburðum í Mosfellsdal í dag, en þar hefur mátt heyra skothvelli á meðan drónar sveima yfir. Fréttir bárust af því í morgun að þúsundum minka hefði verið sleppt úr búrum sínum á Dalbúi, síðasta minkabúi landsins, og er unnið hörðum höndum að því að ná stjórn á minkafaraldrinum. „
Staðan er talsvert betri en í morgun, þetta var auðvitað ófremdarástand þegar við mættum,“ sagði Hilmar Gunnarsson bæjarstjóri Mosfellsbæjar. Í tilkynningu frá Mosfellsbæ segir að aðgerðir hafi gengið vel og að starfsfólk á vegum bæjarins vinni að föngun minka sem sloppið hafi út fyrir öryggisgirðingu. Sérþjálfaðir minkahundar séu notaðir til að finna minkana og reynt eins og kostur er að aflífa dýrin með mannúðlegum hætti. Mikið verk hefur verið að reyna að safna saman minkunum. Vísir/Lýður „Við teljum okkur vera búna að ná svolítið vel utan um stöðuna. Staðan er núna þannig að það er búið að setja upp tíu, fimmtán gildrur í kringum svæðið. Allt innan girðingar ætti að vera undir kontról. Nú eru hundar að leita líka hérna fyrir utan girðingu,“ segir bæjarstjórinn. Atburðum dagsins voru gerð ítarleg skil í kvöldfréttum Sýnar. Mikið kapp er lagt á að deyða eða handsama minka áður en þeir fá tækifæri til að valda skaða á viðkvæmu vistkerfi Mosfellsdals. Sett var upp sérstök aðgerðastöð í húsi nóbelsskáldsins. „Við fengum að vera í Gljúfrasteini í dag og erum núna búin að færa okkur niður á bæjarskrifstofur þar sem verður vakt í alla nótt. Ef fólk verður vart við mink viljum við fá tilkynningu um það.“ Hilmar hvetur þau sem verða vör við för minka að hafa samband í síma 525-6700 eða á mos@mos.is. „Við verðum bara á línunni, eftir þörfum, í alla nótt og næstu daga ef þess þarf.“ Aðspurður segist Hilmar ekki vita tölu þeirra minka sem fella hefur þurft fram til þessa. Innbrotahrina í dýrabú Undanfarið hefur verið brotist inn í önnur dýrabú í nágrenninu, meðal annars bú Stjörnugríss á Kjalarnesi í maí. Hilmar segir nýlega atburði vekja upp grunsemdir en það sé ekki hans að svara fyrir málið. „Já, auðvitað leikur grunur á því [að málin tengist] en það er eitthvað sem lögreglan verður að svara.“ Vísir hefur fylgt málinu eftir í allan dag. Fréttavakt okkar, með myndum, myndskeiðum og viðtölum, má finna hér að neðan.
Mosfellsbær Dýr Lögreglumál Loðdýrarækt Minkum sleppt í Mosfellsdal Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira