„Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Sigurgeir Þorkelsson skrifar 29. júlí 2026 20:40 Slökkvilið hafði ráðið niðurlögum eldsins um tveimur klukkustundum eftir að tilkynning barst. Innsent Slökkvistarfi er lokið í Stykkishólmi staðfestir Einar Strand, slökkviliðsstjóri á staðnum, í samtali við fréttastofu. „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt,“ segir Einar, aðspurður hver staðan sé. „
Þetta gekk ágætlega miðað við aðstæður,“ segir Einar. Slökkvistarfi lauk um hálfáttaleytið í kvöld. Íbúar hússins voru komnir út þegar slökkvilið kom á staðinn. „Það var enginn í hættu.“ Altjón er á húsinu sem staðsett var við Skúlagötu. Um er að ræða gamalt einbýlishús úr timbri. „Það var alelda öðrum megin þegar við komum á staðinn,“ segir Einar sem útskýrir hvernig eldurinn hafi verið búinn að læsa klónum kirfilega í húsið. „Það var smá vesen fyrir okkur að komast að þessu, þetta var komið milli þilja í klæðningu hússins. Við eiginlega rifum hálft húsið.“ Tilkynning barst á sjötta tímanum Einari barst tilkynning um eldinn klukkan 17:28. „Við erum síðan komnir á staðinn fimm til sjö mínútum seinna.“ Slökkvilið lögbundið fari þéttbýli yfir 300 manns „Mig hefði langað að vera með körfubíl,“ segir Einar aðspurður hvort slökkviliðið í Stykkishólmi sé nógu vel búið. Einar tekur fram að í aðkallandi neyð geti verktakar aðstoðað slökkvilið við slíkt. Í Stykkishólmi er um að ræða svokallað hlutastarfandi slökkvilið. „Það er enginn á stöðinni,“ útskýrir Einar. „Svona er þetta fyrir eiginlega öll slökkvilið á Íslandi nema fjögur.“ Hattur slökkviliðsmannsins er því aðeins einn af nokkrum sem Einar ber, sem er ánægður með að þurfa sjaldan að bera þann hatt. „Ég held að það séu verða tuttugu og eitthvað ár síðan við fengum alvarlegan bruna í Stykkishólmi síðast,“ segir Einar að lokum.
Stykkishólmur Slökkvilið Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira