„Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Sigurgeir Þorkelsson skrifar 29. júlí 2026 00:42 Andrés Magnússon, blaðamaður, og Andrés Jónsson, almannatengill. Samsett Þekkt er að, forðum daga, fékk Andrés nóg eftir þrjú tonn af sandi. Hæstvirtur forsætisráðherra er þó greinilega engin sandhrúga því nafnarnir Andrés og Andrés fá ekki nóg af Kristrúnu Frostadóttur eftir frammistöðu hennar í hlaðvarpsviðtali hjá The rest is politics. Hlaðvarpið er breskt og þykir eitt hið virtasta á sínu sviði. „
Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni,“ sagði Andrés Magnússon, blaðamaður Morgunblaðsins. „Ég held að hún hafi gert gott mót í þessum þætti.“ „Ég held að þetta hafi verið fín landkynning. Hún ber af sér góðan þokka og henni fipaðist ekkert, hún svaraði öllu mjög fumlaust. Sumt hafði hún greinilega hugsað mjög vel og það skein í gegn,“ sagði Andrés Magnússon síðar í viðtalinu. „Hún kemur auðvitað afskaplega vel fyrir,“ segir Andrés Jónsson, almannatengill. Andrés gegndi trúnaðarstörfum fyrir Samfylkinguna í upphafi aldar en hefur síðustu ár starfað sem ópólitískur almannatengill með góða þekkingu á stjórnmálum. „Þetta er sterkt viðtal fyrir Kristrún. Ég held að hlaðvarp henti mjög vel stjórnmálamönnum,“ bendir hann á. Frétt Vísis upp úr viðtalinu má finna hér að neðan. Almannatengillinn segir að viðtalið veiti góða innsýn í líf Kristrúnar og hvernig hún nálgist hlutina. „Þegar þú ert að tala í útlöndum þá kannski gleymirðu aðeins að þú ert að tala við Íslendinga það hefur margs konar kosti í för með sér, við fengum svolítið innsýn í hvernig hún hugsar um sjálfa sig, fjölskylduna sína og Samfylkinguna. Ég held að stjórnmálafræðingar, og áhugastjórnmálafræðingar, hafi fengið mikið fyrir sinn snúð,“ segir Andrés Jónsson. „Íslendingar eru alltaf ánægðir þegar okkar fremsta fólk stendur sig vel í útlöndum.“ Ítarlegt viðtal Viðtalið er klukkustundarlangt og gefst forsætisráðherra því færi á að skýra mál sitt til hlítar og er meðal annars kafað í Evrópumálin. Andrés Magnússon segir Kristrúnu hafa haldið sig til hlés í þeirri umræðu hingað til. „Kristrún hefur ekkert verið mjög gjöful á viðtöl, sérstaklega upp á síðkastið – og alls ekki um Evrópumál – en þarna tjáði hún sig töluvert um þau, hennar afstöðu og setti fram ákveðna fyrirvara í málinu. En ég held að það hafi komið mörgum á óvart að það sem hún kynnti þar sem helstu röksemdina fyrir inngöngu í Evrópusambandið, ástandið í heimsmálunum því það væri mikil óvissa í vestri og ákveðnar ógnir í austri sem væri best hægt að mæta með þessu móti.“ Andrés Jónsson tók að einhverju leyti undir með nafna sínum. „Þetta var aðeins annar tónn. Hún hefur hingað til haldið sig til hlés en hún sagðist nú ætla að fara í túr um landið og hlusta á fólk, ræða við það og sannfæra það um að við eigum að hafa þennan möguleika sem aðildarviðræður skapa. Hún tekur af skarið þarna.“ Andrés og Andrés töldu áhugavert að Kristrún reyndi ekki að yfirselja Evrópusambandið og væri þá mögulega að senda skilaboð til annarra hér á landi sem gerði það. Nefndu þeir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, formann Viðreisnar og utanríkisráðherra, í því sambandi. Sögðu þeir mikið undir hjá Viðreisn að þjóðin greiddi atkvæði með aðildarviðræðum. Andrésarnir voru til viðtals í Reykjavík síðdegis og fóru um víðan völl. Viðtalið má finna hér að neðan.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Hlaðvörp Bretland Samfylkingin Fjölmiðlar Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Tengdar fréttir Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Kristrún Frostadóttir hefur gegnt embætti forsætisráðherra Íslands í um eitt og hálft ár, en hún hefur leitt ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins frá árslokum 2024. 8. júlí 2026 20:02 Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Sjá meira
Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Kristrún Frostadóttir hefur gegnt embætti forsætisráðherra Íslands í um eitt og hálft ár, en hún hefur leitt ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins frá árslokum 2024. 8. júlí 2026 20:02