Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Sunna Sæmundsdóttir skrifar 28. júlí 2026 11:53 Sigríður Kristinsdóttir sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu. Sýn/Einar Margfalt fleiri greiddu atkvæði á fyrsta degi utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna Evrópusambandsviðræðna en í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu segir áhugann virðast mikinn.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að Evrópusambandinu hófst í gær hjá skrifstofum sýslumanna á landinu og hjá sendiráðum og ræðismannsskrifstofum erlendis. Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu, segir ásóknina óvenju mikla. „Í gær kusu tvö hundruð sextíu og sex hjá okkur en hjá öllum sýslumönnum, sendiráðum og ræðismönnum voru þeir fjögur hundruð og átta. Þannig þetta fer mjög vel af stað og það virðist mikill áhugi á þessum kosningum,“ segir Sigríður. Opnað var á ný klukkan tíu í morgun og upp úr klukkan ellefu höfðu um eitt hundrað og tuttugu þegar greitt atkvæði hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Ásóknin er mun meiri en í síðustu sveitarstjórnarkosningum í vor þegar fimmtíu og tveir greiddu atkvæði á fyrsta degi. Sigríður segir að í síðustu forseta- og alþingiskosningum hafi allt að tuttugu og átta þúsund manns greitt atkvæði utan kjörfundar og býst jafnvel við að atkvæðin verði fleiri í ár. „Við sjáum aðeins að íslenskir ríkisborgarar sem búa erlendis eru að koma til okkar, eru í sumarfríi á Íslandi og nota tækifærið og kjósa.“ Opið verður frá klukkan tíu til fjögur hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu í vikunni og opnunartíminn verður lengdur eftir því sem nær dregur kjördegi. Sigríður segir kjörsókn utan kjörfundar hafa verið að aukast á síðustu árum og tengir það við faraldurinn þar sem fólk hafi mögulega komist upp á lagið. Auk þess séu margir á ferðinni í sumar og ráðstafanir verði gerðar ef kjörsóknin verður meiri en búist var við. „Við miðum mönnunina hjá okkur við meðalásókn í utankjörfund en verði þetta miklu meira þurfum við að gefa í.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira