Hræðist ekki sorgarsögu Íslendinga í Króatíu: „Við þurfum bara að skrifa betri sögu“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 28. júlí 2026 08:01 Arnór Gauti steig mikil framfaraskref hjá Breiðabliki síðustu þrjú ár og stígur nú sín fyrsta skref í atvinnumennsku erlendis. SLAVEN BELUPO Arnór Gauti Jónsson ákvað að hlusta ekki neina neikvæðni og er mættur til Króatíu. Hann ætlar að skrifa nýjan, og að þessu sinni góðan, kafla í sögu Íslendinga í króatíska boltanum. Hlutirnir gerðust hratt hjá Arnóri síðustu daga, hann stóð á miðjunni hjá Breiðabliki í síðustu viku en er nú orðinn leikmaður Slaven Belupo í Króatíu. „Strax eftir síðustu helgi voru einhverjar vendingar og viðræður við Breiðablik. Svo var það á fimmtudaginn sem liðin ná saman og þetta fer að rúlla mjög hratt. Ég var kominn út á laugardagskvöldi, síðan er deildin bara að byrja á föstudaginn. Risaleikur á móti Dinamo Zagreb, ekki amalegt að byrja þetta þar,“ sagði Arnór í viðtali sem var sýnt í Sportpakka Sýnar í gærkvöld og má sjá hér fyrir neðan. Fjórði Íslendingurinn sem fer til Króatíu Arnór er fjórði Íslendingurinn sem fer úr Bestu deildinni í króatísku úrvalsdeildinni. Hinir þrír, Danijel Dejan Djuric, Logi Hrafn Róbertsson og Oliver Heiðarsson náðu engan veginn að fóta sig. Arnór hefur samt engar efasemdir. „Nei, ég get ekki sagt það. Ég er mættur bara til að sýna og sanna að ég geti spilað á hærra stigi. Burtséð frá því hvernig öðrum gekk. Þeir voru kannski óheppnir með þjálfara, aðstöðu eða eitthvað. Vonandi lendi ég ekki í einhverju svoleiðis. Ég mun láta mín örlög í mínar hendur og leggja hart að mér, þá gerast góðir hlutir. Ég hef engar áhyggjur af sögu Íslendinga í deildinni, við þurfum bara að skrifa betri sögu.“ Íslendingar í króatísku úrvalsdeildinni Danijel Dejan Djuric Fór til NK Istra árið 2024 19 leikir / 23,9 mínútur að meðaltali í leik 0 mörk / 1 stoðsending Samdi við KA í mars 2026 Logi Hrafn Róbertsson Fór til NK Istra árið 2024 17 leikir / 32,4 mínútur að meðaltali í leik 0 mörk / 0 stoðsendingar Samdi við IFK Värnamo í febrúar 2026 Oliver Heiðarsson Fór til Lokomotiva Zagreb árið 2025 0 leikir / 0 mínútur 0 mörk / 0 stoðsendingar Samdi við KA í apríl 2026 Arnór Gauti Jónsson Fór til Slaven Belupo árið 2026 ? Arnór ákvað þannig að hafa ekkert samband við forvera sína í Króatíu og fylgja eigin sannfæringu. „Ég hugsaði bara að ég fengi ekkert voða mikið út úr því að heyra skoðanir þeirra, af því að mér datt í hug að þær yrðu kannski ekkert spes. Ég var samt að íhuga að heyra í þeim núna til dæmis, ef þeir eru með einhver góð ráð um hvernig er best að búa og skoða sig um í Króatíu. Ég geri það kannski í þeim tilgangi, en ekki í þeim tilgangi að vita eitthvað meira um spilamennskuna eða deildina eða eitthvað slíkt.“ Króatía Breiðablik Besta deild karla Fótbolti Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Þórsarar komnir á blað Handbolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Handbolti Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Handbolti Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Fótbolti Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Fótbolti Fleiri fréttir Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Dagur Dan kom markmanninum í klandur „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Dagskráin í dag: Manchester United snýr aftur í Meistaradeildina Harmsaga Mudryk heldur áfram Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Evrópumeistararnir hófu titilvörn sína með pomp og prakt Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Sjá meira
Hlutirnir gerðust hratt hjá Arnóri síðustu daga, hann stóð á miðjunni hjá Breiðabliki í síðustu viku en er nú orðinn leikmaður Slaven Belupo í Króatíu. „Strax eftir síðustu helgi voru einhverjar vendingar og viðræður við Breiðablik. Svo var það á fimmtudaginn sem liðin ná saman og þetta fer að rúlla mjög hratt. Ég var kominn út á laugardagskvöldi, síðan er deildin bara að byrja á föstudaginn. Risaleikur á móti Dinamo Zagreb, ekki amalegt að byrja þetta þar,“ sagði Arnór í viðtali sem var sýnt í Sportpakka Sýnar í gærkvöld og má sjá hér fyrir neðan. Fjórði Íslendingurinn sem fer til Króatíu Arnór er fjórði Íslendingurinn sem fer úr Bestu deildinni í króatísku úrvalsdeildinni. Hinir þrír, Danijel Dejan Djuric, Logi Hrafn Róbertsson og Oliver Heiðarsson náðu engan veginn að fóta sig. Arnór hefur samt engar efasemdir. „Nei, ég get ekki sagt það. Ég er mættur bara til að sýna og sanna að ég geti spilað á hærra stigi. Burtséð frá því hvernig öðrum gekk. Þeir voru kannski óheppnir með þjálfara, aðstöðu eða eitthvað. Vonandi lendi ég ekki í einhverju svoleiðis. Ég mun láta mín örlög í mínar hendur og leggja hart að mér, þá gerast góðir hlutir. Ég hef engar áhyggjur af sögu Íslendinga í deildinni, við þurfum bara að skrifa betri sögu.“ Íslendingar í króatísku úrvalsdeildinni Danijel Dejan Djuric Fór til NK Istra árið 2024 19 leikir / 23,9 mínútur að meðaltali í leik 0 mörk / 1 stoðsending Samdi við KA í mars 2026 Logi Hrafn Róbertsson Fór til NK Istra árið 2024 17 leikir / 32,4 mínútur að meðaltali í leik 0 mörk / 0 stoðsendingar Samdi við IFK Värnamo í febrúar 2026 Oliver Heiðarsson Fór til Lokomotiva Zagreb árið 2025 0 leikir / 0 mínútur 0 mörk / 0 stoðsendingar Samdi við KA í apríl 2026 Arnór Gauti Jónsson Fór til Slaven Belupo árið 2026 ? Arnór ákvað þannig að hafa ekkert samband við forvera sína í Króatíu og fylgja eigin sannfæringu. „Ég hugsaði bara að ég fengi ekkert voða mikið út úr því að heyra skoðanir þeirra, af því að mér datt í hug að þær yrðu kannski ekkert spes. Ég var samt að íhuga að heyra í þeim núna til dæmis, ef þeir eru með einhver góð ráð um hvernig er best að búa og skoða sig um í Króatíu. Ég geri það kannski í þeim tilgangi, en ekki í þeim tilgangi að vita eitthvað meira um spilamennskuna eða deildina eða eitthvað slíkt.“
Íslendingar í króatísku úrvalsdeildinni Danijel Dejan Djuric Fór til NK Istra árið 2024 19 leikir / 23,9 mínútur að meðaltali í leik 0 mörk / 1 stoðsending Samdi við KA í mars 2026 Logi Hrafn Róbertsson Fór til NK Istra árið 2024 17 leikir / 32,4 mínútur að meðaltali í leik 0 mörk / 0 stoðsendingar Samdi við IFK Värnamo í febrúar 2026 Oliver Heiðarsson Fór til Lokomotiva Zagreb árið 2025 0 leikir / 0 mínútur 0 mörk / 0 stoðsendingar Samdi við KA í apríl 2026 Arnór Gauti Jónsson Fór til Slaven Belupo árið 2026 ?
Króatía Breiðablik Besta deild karla Fótbolti Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Þórsarar komnir á blað Handbolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Handbolti Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Handbolti Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Fótbolti Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Fótbolti Fleiri fréttir Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Dagur Dan kom markmanninum í klandur „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Dagskráin í dag: Manchester United snýr aftur í Meistaradeildina Harmsaga Mudryk heldur áfram Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Evrópumeistararnir hófu titilvörn sína með pomp og prakt Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Sjá meira