Sport

Kvennatennisinn tekur upp kynjapróf fyrir alla leik­menn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hér má sjá tenniskonurnar Söru Errani, Jasmine Paolini, Taylor Townsend og Katerinu Siniakovu sem eins og allar aðrar tenniskonur þurfa að ganga undir kynjapróf til að fá að halda áfram keppni.
Hér má sjá tenniskonurnar Söru Errani, Jasmine Paolini, Taylor Townsend og Katerinu Siniakovu sem eins og allar aðrar tenniskonur þurfa að ganga undir kynjapróf til að fá að halda áfram keppni. Getty/Mauricio Paiz

Bestu kvenkyns tennisleikarar heims verða framvegis að sanna að þeir séu konur til að fá að keppa á WTA-mótaröðinni.

Þetta kemur fram í uppfærðum reglum Kvennatennissambandsins, WTA, að því er breska ríkisútvarpið greinir frá.

Leikmennirnir munu gangast undir greiningu á svokölluðu SRY-geni, sem er nánast alltaf á Y-litningi karla. Það er talið nákvæmur mælikvarði á líffræðilegt kyn viðkomandi.

Ef prófið er jákvætt og gefur til kynna að leikmaður gæti haft líffræðilegt forskot, verður viðkomandi að gangast undir frekari læknisrannsóknir áður en tekin er afstaða til þess hvort leikmaðurinn fái hreinlega að taka þátt í WTA-mótaröðinni.

Tennisinn fer þarna svipaða leið og Alþjóðafrjálsíþróttasambandið en allar konur sem keppa á alþjóðlegum frjálsíþróttasamböndum þurfa að hafa gengist undir sams konar kynjapróf.

„Reglur WTA um þátttöku í kvennaflokki eru settar til að stuðla að jöfnum tækifærum og sanngjarnri samkeppni í atvinnumannatennis kvenna. Við gerum okkur grein fyrir því að þetta er viðkvæmt og flókið mál og erum staðráðin í að koma fram við alla leikmenn af virðingu og reisn,“ segir í yfirlýsingu frá WTA.

Að sögn breska ríkisútvarpsins eru engin þekkt dæmi um trans konur sem keppa á WTA-mótaröðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×