Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. júlí 2026 12:31 Rodrigo virðist ekki hafa látið úrkomuna hafa áhrif á innlifun sína á hlaupum við bakka íslenskrar ár undir nýjum slaga sínum. Til hægri sést hún á Keflavíkurflugvelli með nýja kærastanum. Bandaríska poppstjarnan Olivia Rodrigo dvaldi hér á landi á dögunum og vakti nokkra kátínu meðal íslenskra aðdáenda sinna. Söngkonan lenti í Keflavík árla morguns fimmtudaginn 17. júlí eftir næturflug á fyrsta farrými með Icelandair frá Portland.
Rodrigo yfirgaf landið í gær samkvæmt heimildum Vísis og hefur nú birt myndband á TikTok-reikningi sínum þar sem hún sést á harðahlaupum í grennd við það sem virðist vera Helgufoss í Mosfellsdal. Undir hljómar lagið „Stupid Song" af nýjustu breiðskífu hennar „You seem pretty sad for a girl so in love“ sem kom út 12. júní síðastliðinn. @livbedumb ♬ stupid song - Olivia Rodrigo Söngkonan heimsótti meðal annars Reykjavík Record Shop á föstudaginn þar sem hún festi kaup á nokkrum vínylplötum. Frá þessu segir í færslu sem verslunin birti sjálf á TikTok, en þar kemur fram að starfsfólk verslunarinnar hafi lofað að segja ekki frá heimsókninni fyrr en í dag. @reykjavik.record.shop News flash: Olivia Rodrigo droppaði við á föstudaginn í Reykjavík Record Shop og keypti nokkrar plötur og spjallaði við okkur. Mjög næs og skemmtileg og við lofuðum að segja ekkert fyrir en í dag 💖🥰 #reykjavíkrecordshop #oliviarodrigo #vinyl #iceland #indierecordshop ♬ stupid song - Olivia Rodrigo Julian Croonenberghs, nýr kærasti söngkonunnar, sást með Rodrigo á leið frá Íslandi áleiðis til New York. Croonenberghs starfar sem sjóðstjóri hjá framtakssjóðnum Hg Capital. Áður vann hann sem greinandi hjá Goldman Sachs og lék með karlalandsliði Bandaríkjanna í hokkí. Hann er útskrifaður frá Brown-háskóla. Rodrigo hyggur á tónleikaferðalag, The Unraveled Tour, til að fylgja eftir nýju plötunni. Túrinn hefst 25. september í Bandaríkjunum og teygir sig síðar til Evrópu og Bretlands. Olivia Rodrigo er ein vinsælasta popptónlistarkona samtímans og hefur unnið til þriggja Grammy-verðlauna á ferlinum. Hún sló fyrst rækilega í gegn árið 2021 með laginu „Drivers license" og hefur síðan þá sent frá sér breiðskífurnar Sour og Guts, auk þeirrar nýjustu. Varð Olivia Rodrigo á vegi þínum á Íslandi? Sendu okkur fréttaskot hér.
Íslandsvinir Tónlist Tengdar fréttir Tónlistarkonan Olivia Rodrigo fékk að heyra það út af kjöri Rodri Nettröllin lentu í ákveðnu vandamáli þegar þau vildu herja á spænska miðjumanninn Rodri eftir að hann fékk Gullhnöttinn, Ballon d'Or, á mánudagskvöldið. 30. október 2024 07:30 Þetta eru bestu lög 21. aldarinnar Tónlistartímaritið Rolling Stone hefur tekið saman lista yfir 250 bestu lög 21. aldarinnar. Eins og við mátti búast er listinn ekki óumdeildur og trónir sömuleiðis nokkuð óvænt lag á toppnum. 10. október 2025 13:23 Laufey fagnaði með Oliviu Rodrigo og Chappell Roan Stórstjarnan og tónlistarkonan Laufey Lín heldur ótrauð áfram ævintýrum sínum vestanhafs þar sem hún hefur slegið í gegn. Helginni eyddi hún í Los Angeles þar sem hún er búsett með engum öðrum en Oliviu Rodrigo og Chappell Roan, sem eru með stærstu tónlistarstjörnum heims í dag. 28. október 2024 10:01 Mest lesið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Bíó og sjónvarp Komin á eftirlaun og með skotheldar leiðir til að ferðast ódýrt um Ítalíu Ferðalög Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Stjörnurnar syngja inn haustið Bíó og sjónvarp Líkindi með Grand Theft Auto og Red Dead Redemption Leikjavísir Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Lífið Hvað veistu um… Dolly Parton? Lífið Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Lífið Fleiri fréttir Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Sjá meira
Tónlistarkonan Olivia Rodrigo fékk að heyra það út af kjöri Rodri Nettröllin lentu í ákveðnu vandamáli þegar þau vildu herja á spænska miðjumanninn Rodri eftir að hann fékk Gullhnöttinn, Ballon d'Or, á mánudagskvöldið. 30. október 2024 07:30
Þetta eru bestu lög 21. aldarinnar Tónlistartímaritið Rolling Stone hefur tekið saman lista yfir 250 bestu lög 21. aldarinnar. Eins og við mátti búast er listinn ekki óumdeildur og trónir sömuleiðis nokkuð óvænt lag á toppnum. 10. október 2025 13:23
Laufey fagnaði með Oliviu Rodrigo og Chappell Roan Stórstjarnan og tónlistarkonan Laufey Lín heldur ótrauð áfram ævintýrum sínum vestanhafs þar sem hún hefur slegið í gegn. Helginni eyddi hún í Los Angeles þar sem hún er búsett með engum öðrum en Oliviu Rodrigo og Chappell Roan, sem eru með stærstu tónlistarstjörnum heims í dag. 28. október 2024 10:01