Sport

Littler byrjaði á níu pílna leik í mögnuðum sigri

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Nathan Aspinall gat ekki annað en dáðst að frammistöðu Luke Littler í gær.
Nathan Aspinall gat ekki annað en dáðst að frammistöðu Luke Littler í gær. Getty/Ben Roberts Photo/

Luke Littler náði stórkostlegum níu pílna leik á leið sinni að 11-8 sigri á Nathan Aspinall í World Matchplay-pílumótinu í gærkvöldi.



Heimsmeistarinn var með 113,68 í meðaltal, sem er annað hæsta meðaltal í 32 ára sögu World Matchplay sem er eitt af þremur stærstu mótunum í pílukastheiminum.

Littler náði fullkomnun með níu pílna leik í fyrsta legg leiksins og gaf tóninn fyrir einn besta leik sem fólk hefur nokkurn tíma séð á þessu sviði.



Unglingurinn, sem einnig náði fullkomnun í undanúrslitum síðasta árs gegn Josh Rock, tryllti lýðinn í Blackpool enn á ný með því að verða aðeins annar leikmaðurinn til að ná tveimur níu pílna leikjum á World Matchplay.

„Þetta var ótrúleg tilfinning. Þetta var sennilega besti leikur sem ég og Nathan höfum spilað hvor gegn öðrum,“ viðurkenndi Luke Littler eftir leikinn.

„Þegar ég var að æfa mig baksviðs var ég að spila ágætlega en níu pílna leikurinn bara gerðist. Ég er bara glaður að hafa tekið þátt í svona mögnuðum leik,“ sagði Littler.

„Þetta eru tvær ótrúlegar frammistöður hjá mér hérna. Vonandi get ég unnið titilinn aftur, en ég verð bara að einbeita mér að því hverjum ég mæti næst,“ sagði Littler.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×