Evrópa hefur tekið yfir tennis karlamegin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. júlí 2026 16:30 Ítalinn Jannik Sinner kyssir bikarinn eftir sigur sinn á Wimbledon-risamótinu í tennis. Getty/Clive Brunskill Þrjú risamót eru að baki á þessu tennisári og aðeins eitt er eftir. Ítalinn Jannik Sinner varð þriðji Evrópubúinn til að vinna risamót á árinu 2026 þegar hann tryggði sér sigur á Wimbledon-mótinu.
Spánverjinn Carlos Alcaraz hafði áður unnið Opna ástralska mótið og Þjóðverjinn Alexander Zverev hafði unnið Opna franska meistaramótið. Evrópa hefur algjörlega tekið yfir karlatennisinn því það þarf að fara allt til ársins 2009 til að finna tímabil þar sem tenniskarl utan Evrópu hefur unnið risamót. Þá vann Argentínumaðuirnn Juan Martín del Potro Opna bandaríska meistaramótið eftir sigur á Svisslendingnum Roger Federer í úrslitaleiknum. Það er eina risamótið frá árinu 2004 þar sem tenniskarl utan Evrópu hefur fagnað sigri. Það þarf að fara 23 ár aftur í tímann til að finna bandarískan karlsigurvegara á risamóti. Tímabilið 2003 vann Andre Agassi Opna ástralska mótið og landi hans Andy Roddick vann Opna bandaríska meistaramótið. Evrópskir karltennisspilarar hafa unnið 87 af 88 síðustu risamótum frá og með árinu 2004 eins og sést hér vel hér fyrir neðan. Síðasta risamót ársins er Opna bandaríska meistaramótið í lok ágúst og þá verður fróðlegt að sjá hvort Evrópumenn herði enn takið. Evrópumenn eru í efstu þremur sætunum á heimslistanum en það eru fjórir tenniskarlar utan Evrópu á topp tíu en það eru Kanadamaðurinn Felix Auger-Aliassime, Ástralinn Alex de Minaur og Bandaríkjamennirnir Ben Shelton og Taylor Fritz. Hvort þeim eða einhverjum öðrum takist að enda sigurgöngu Evrópumanna verður að koma í ljós. View this post on Instagram A post shared by Artyom Ostapenko (@tennislifekz)
Tennis Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Fleiri fréttir Rekinn frá Tyrkjum Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Arteta framlengir við Arsenal Fékk „brjálæðislegt“ magn rasískra skilaboða eftir umdeilt atvik Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Mun ekki stíga aftur á völlinn það sem eftir er tímabilsins Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 81-71| Grindavík sterkari á lokasprettinum Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ KR vann erkifjendurna sannfærandi „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Náðu að vinna sterkt spænskt lið Sóttu fyrsta sigur tímabilsins á heimavelli FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Sjá meira