Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. júlí 2026 16:56 Foreldrarnir með nýbakaðar tvíburadætur sínar. Úr einkasafni Nýbökuð móðir tvíburastúlkna uppfyllir ekki kröfu um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði eftir að hafa gengist undir bráðakeisara sex vikum fyrir settan dag. Á meðan stúlkurnar lágu á vökudeild barst móðurinni óvænt niðurstaða sjóðsins sem faðirinn lýsir sem þungu höggi. Þau hafa kært niðurstöðuna til úrskurðarnefndar velferðarmála. „
Þetta er ótrúlega erfitt og var þungt högg í magann þegar við heyrðum þetta fyrst,“ segir Friðrik Rúnar Friðriksson. Annar tvíburinn í lífshættu Tvíburadætur þeirra Ronju Ránar Palladóttur fæddust þann 27. júní síðastliðinn með bráðakeisaraskurði eða sex vikum fyrir settan dag, þann 7. ágúst. Í bréfi þeirra Ronju og Friðriks kemur fram að ákvörðunin um bráðakeisarann hafi ekki verið í höndum Ronju, heldur hafi legið fyrir læknisfræðileg nauðsyn. Bæði Ronja sjálf og annar tvíburinn, sem glímdi við vaxtarskerðingu í móðurkviði, hafi verið í lífshættu og því hafi þurft að grípa tafarlaust inn í til að tryggja öryggi þeirra. Foreldrarnir benda á að hefðu börnin fæðst á settum degi hefði Ronja uppfyllt skilyrði um starfshlutfall og þar með átt rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þau segja niðurstöðuna sérstaklega ósanngjarna í ljósi þess að jafnvel örfárra daga frestun fæðingarinnar, fram í júlí, hefði dugað til að tryggja réttinn – en slík frestun hafi ekki verið raunhæfur kostur vegna þeirrar alvarlegu hættu sem steðjaði að heilsu og lífi bæði móður og barns. „Ronja gat með engu móti haft stjórn á því hvenær börnin þurftu að fæðast,“ segir í bréfinu, þar sem foreldrarnir leggja áherslu á að um bráða læknisfræðilega stöðu hafi verið að ræða. Þau segja það afar ósanngjarnt að lífsnauðsynlegur bráðakeisaraskurður fyrir tímann leiði til þess að Ronja missi rétt til fæðingarorlofsgreiðslna, sem hún hefði ella átt ef meðgangan hefði getað haldið áfram örfáum dögum lengur. Í bréfinu er þess óskað að tekið verði tillit til hinna sérstöku aðstæðna sem lágu að baki fyrirburafæðingunni – að hún hafi orðið til vegna ófyrirséðra og alvarlegra læknisfræðilegra ástæðna en ekki vegna neinnar ákvörðunar sem Ronja hafði stjórn á. Foreldrarnir fara fram á að málið verði tekið til ítarlegrar endurskoðunar og að ákvörðunin um synjun greiðslna verði endurmetin í ljósi þessa. Á vökudeild þegar óvæntur póstur barst Friðrik Rúnar segir í samtali við Vísi málið í meira lagi skrýtið. Þau hafi bæði verið búin að fá samþykkt fæðingarorlof. Ronja Rán lauk námi í desember og hóf í jólamánuðinum vinnu við 100 prósent starf. Hlutfallið hafi þó aðeins náð 20 prósentum í desember áður en hún náði að vinna heila mánuði á nýju ári. Því var ljóst að til að fá fæðingarorlof þyrfti hún að vinna út júnímánuð til að uppfylla skilyrði. Á það var stefnt enda settur dagur ekki fyrr en 7. ágúst. Ronja Rán með gullmolana tvo. „Við fórum fyrst á Landspítalann á viku 30 og þá veltu læknarnir fyrir sér að mögulega væri tilefni til að fara í bráðakeisara,“ segir Friðrik Rúnar. Fjórum vikum síðar var ástandið metið það alvarlegt að Ronja Rán fékk ekki að fara heim. Allt var undirbúið fyrir bráðakeisara daginn eftir þar sem stelpurnar tvær komu í heiminn. Önnur dóttirin var í öndunarvél fyrstu dagana og saman voru þær í tólf daga á spítalanum áður en þær fengu að fara heim. Þá hafði Ronju borist bréf frá Fæðingarorlofssjóði með óvæntum tíðindum. „Þar stóð að hún uppfyllti ekki skilyrðin. Við sendum bréf og spurðum hvað þau meintu. Það hlyti að vera hægt að gera eitthvað. En þau sögðu bara „sorry“, ekkert væri hægt að gera.“ Heilbrigðar, sterkar og góðar Þau hafa kært málið til úrskurðarnefndar velferðarmála og sent fyrrnefnt bréf máli sínu til stuðnings. Verði engin breyting á segir Friðrik Rúnar orlof hans í uppnámi enda sé hann í fæðingarorlofi í tvo og hálfan mánuð til að byrja með en gæti þurft að gera breytingar á því. Eftir tvær vikur á vökudeild voru systurnar klæddar í sitt fínasta púss og fengu að fara heim til sín í Mosfellsbæinn. Systurnar þriggja vikna kippa sér ekki upp við tíðindin og eru sannarlega ljós foreldra sinna. Þær eru lausar við sondur sem þær notuðu fyrstu tvær vikurnar. „Þær eru heilbrigðar, sterkar og góðar,“ segir Friðrik og sama er að segja af nýbakaðri móður sem sé öll á uppleið eftir áskoranir sem fylgja inngripi sem bráðakeisaraaðgerð sé.
Fæðingarorlof Mosfellsbær Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Sjá meira