Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar 14. júlí 2026 16:03 Í framhaldi af opnun afgreiðslulagers Sante á Fáskrúðsfirði í sama húsnæði og einokunarverslun með áfengi hafði verið rekin, áður en ,,Ríkið” yfirgaf byggðalagið, hefur ekki staðið á viðbrögðum hins opinbera og varðhundum kerfisins. Sigurður Ingi Jóhannsson, fyrrverandi fjármálaráðherra, steig fram á Vísi í vikunni og krafðist þess að ekki yrði leyft „frekjukallinum að vaða uppi". Þar hitti hann naglann á höfuðið. Hitt er óvíst að hann hafi áttað sig á hvaða nagla hann sló. Rifjum upp atburðarásina. Árið 2024 sat Sigurður Ingi í fjármálaráðuneytinu. Þar fór hann með hlutabréf ríkisins í ÁTVR - einokunarversluninni sem heyrir undir sama ráðuneyti - og með fjárlagafrumvarpið sem ákvarðar meðal annars framlög til löggæslu. Í þessari stöðu, sem eigandi, yfirmaður og fjárveitandi í senn, sendi hann lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu lögfræðilegt álit um að starfsemi keppinauta einokunarverslunar sinnar væri sennilega ólögleg. Þetta kallast á lagamáli áhugavert. Á venjulegu máli kallast það að vaða uppi. Montesquieu setti fram kenninguna um þrískiptingu ríkisvaldsins árið 1748. Hún hefur síðan borist til flestra landa heims, en virðist enn eiga í nokkrum vandræðum með dreifingu í Hrunamannahreppi. Því nú, tveimur árum síðar, kallar sami maður eftir því að dómsmálaráðherra, forsætisráðherra og fjármálaráðherra „tali skýrt" til lögreglunnar - það er að segja: að framkvæmdarvaldið segi löggæslunni fyrir verkum um það hverja skuli sækja til saka. Þessa kröfu ber hann fram í nafni réttarríkisins. Það er dálítið eins og að krefjast þess í nafni umferðaröryggis að ráðherrar fái að stýra umferðarljósunum handvirkt. Röksemdafærslan er annars þessi: Fallinn er dómur - héraðsdómur, í máli eins fyrirtækis, sem þegar hefur verið boðað að verði áfrýjað - og því sé „óskiljanlegt" að atvinnugreinin vaxi. Hér birtist eitt elsta stef íslenskra stjórnmála. Framsóknarflokknum hefur alltaf þótt óskiljanlegt þegar eitthvað vex án leyfis frá nefndinni. Um það vitnar sagan. Á fjórða áratugnum reis á Korpúlfsstöðum stærsta mjólkurbú Norðurlanda, hið fullkomnasta sinnar tegundar í Evrópu - fjós með rennandi vatni, mjaltavélum og heilbrigðiseftirliti á meðan drjúgur hluti íslenskra bænda bjó enn í torfbæjum og handmjólkaði í fötu. Þetta var óþolandi. Ekki torfbæirnir heldur Korpúlfsstaðabúið. Með afurðasölulöggjöfinni var séð til þess að reksturinn bæri sig ekki, og stærsta framfaraskref íslensks landbúnaðar var kæft í nafni kotbænda sem það hefði getað leyst úr torfinu. Flokkurinn sem þessu réð kallaði sig, og kallar sig enn, Framsókn. Nafngiftin er ein glæsilegasta háðsádeila Íslandssögunnar, og hún er sjálfsprottin. Korpúlfsstaðir voru heldur ekki einsdæmi, heldur upphaf hefðar. Hálfri öld síðar tók Pálmi í Hagkaup - sem í kerfinu gekk undir heitinu ,,Freki Pálmi” og er þar með fyrsti formlega skráði frekjukall lýðveldisins - upp á því að selja lesgleraugu á skaplegu verði. Varðliðið reis þegar upp og benti á hið augljósa: að ódýr lesgleraugu væru ávísun á bakslag í baráttunni gegn gláku. Þjóðin skyldi ekki sjá betur nema að fengnu leyfi, og var betur haldin rýnandi í myrkrinu með vottorð en lesandi við lampann án þess. Sjónvernd landsmanna var enda best borgið hjá sömu hugmyndafræði og annaðist næringu þeirra. Grænmetisverslun landbúnaðarins hafði einkarétt á kartöflum og nýtti hann meðal annars til að flytja inn myglaðar kartöflur frá Finnlandi, sem flokknum og stofnuninni þóttu fullboðlegar ofan í þjóðina. Í því kerfi var neytandinn nefnilega ekki viðskiptavinur heldur viðtakandi, og viðtakandi kvartar ekki - hann þakkar fyrir sig og sker mygluna frá. Því sóknin fram hefur alltaf verið í eina átt: fram að jötunni. Einokun, skömmtun, höft og milliliðir með rétt skírteini - þetta hefur reynst flokknum fengsæl mið í heila öld, og það skal engan undra að hann rói þangað enn þegar netverslun með vín ógnar helgasta véinu, versluninni sem ríkið rekur með tapi og niðurgreiðir með tóbaksheildsölu. Sigurður Ingi líkir vínbúðum við trjáþjófnað og akstur yfir á rauðu ljósi. Samlíkingin segir sína sögu. Maður sem sér engan mun á því að selja Riesling og að stela reynitré hefur annaðhvort aldrei keypt vín eða aldrei átt tré - nema hvort tveggja sé, og skýringin sú að í hans heimsmynd er brotið ekki fólgið í tjóninu heldur í leyfisleysinu. Tréð má ekki taka af því það er annarra eign; vínið má ekki selja af því verslunin er annarra einokun. Í báðum tilvikum er syndin sú sama: einhver gerði eitthvað án þess að spyrja. Kröfuharkan um að aðrir verði stöðvaðir strax er svo þeim mun eftirtektarverðari í ljósi þess hraða sem Sigurður Ingi hefur sjálfur tamið sér þegar eigin framganga ratar í fréttir. Eftir Búnaðarþing árið 2022, þegar ummæli hans um húðlit framkvæmdastjóra Bændasamtakanna spurðust út, leið hálf vika áður en afsökunarbeiðni birtist á Facebook - og þó ekki fyrr en aðstoðarmaður hans hafði fyrst þvertekið fyrir að nokkuð hefði verið sagt, með frásögn sem ljósmyndir hröktu. Sjálfur vildi hann hvorki þá né síðar upplýsa hver ummælin voru, heldur lét nægja þá speki að það sem einu sinni hefði verið sagt of mikið ætti maður ekki að segja aftur. Hér birtist réttarheimspeki flokksins í hnotskurn: lögmál viðbragðsflýtisins er afstætt og fer eftir því hvorum megin borðsins menn sitja. Vínbúð annarra er bráðatilfelli sem kallar á tafarlausa íhlutun ríkisvaldsins; eigin orð eru þroskaferli sem tekur sinn tíma og nýtur nafnleyndar. Og þá erum við komin að frekjukallinum. Í ættartölu flokksins er frekjukall hver sá sem selur þjóðinni það sem hún vill - gleraugu án gláku, kartöflur án myglu, Riesling án milliliðar. En frekjukall er ekki sá sem opnar verslun, greiðir skatta af hverri flösku og bíður niðurstöðu dómstóla og eftirlitsstofnana um lögmæti rekstrar síns. Frekjukall er sá sem situr á öllum endum borðsins samtímis - á hlutabréfinu, á fjárveitingunum og á pennanum sem skrifar lögreglunni - og heimtar svo af hliðarlínunni, þegar völdin eru farin, að ríkisvaldið beiti sér gegn keppinautum gamla fyrirtækisins hans. Strax! Höfundur er eigandi Sante. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Netverslun með áfengi Áfengi Framsóknarflokkurinn Arnar Sigurðsson Mest lesið Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson Skoðun Halldór 31.10.26 Halldór Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal Skoðun Skoðun Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson skrifar Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Sjá meira
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun
Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun